Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Vista
raðhús

Klængsbúð 19

815 Þorlákshöfn

84.900.000 kr.

528.314 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2509930

Fasteignamat

72.750.000 kr.

Brunabótamat

81.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2020
svg
160,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu Klængsbúð 19, 815 Þorlákshöfn:

Um er að ræða fallegt og smekklega innréttað 4ra herbergja miðjuraðhús með innbyggðum bílskúr. Birt stærð eignar er 160,7 fm. þar af er íbúðarhluti 129,2 fm. og bílskúr 31,5 fm. Húsið er einstaklega vel staðsett miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð / sundlaug og verslanir. 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Eignin skiptist í forstofu, gang, þrjú svefnherbergi, í alrými er stofa / borðstofa og eldhús, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.

Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með hvítum fataskáp, innfelld ljós í loft.
Stofa / borðstofa: Í alrými, mjög rúmgóð og björt, innfelld ljós í loft, parket á gólfi.  
Eldhús: Í alrými,  falleg hvít innrétting og stór eyja með miklu skápaplássi, innfelldur ísskápur/frystir og uppþvottavél, spanhelluborð á eyju, 2 bakaraofn og er annar þeirra líka örbylgjuofn, innfelld ljós í loft, parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi, góðir fataskápar með rennihurð, innfelld ljós í loft, útgengi út á verönd á baklóð, parket á gólfi. 
Svefnherbergi 2: Rúmgott herbergi, fataskápur, innfelld ljós í loft, parket á gólfi. 
Svefnherbergi 3: Rúmgott herbergi, innfelld ljós í loft, parket á gólfi. 
Gangur: Innfelld ljós í lofti, parket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi, falleg viðar innrétting, walk in sturta með hillu og led lýsingu, upphengt salerni, handklæðaofn, innfelld ljós í loft,  flísalagt í hólf og gólf. 
Þvottahús: Með góðri innréttingu, skolvaskur, innangengt í bílskúr, lúga upp á geymsluloft, flísar á gólfi.
Bílskúr: Innbyggður 31.5 fm. bílskúr, hillur, heitt og kalt vatn, rafdrifin bílskúrshurðaopnari, gönguhurð út á framhlið, flísar á gólfi.
Staðset

Húsið: Húsið er byggt 2020 og er úr timbri og klætt að utan með fínkornuðu steni,  gólfhiti er í húsinu. 
Lóð: Framan við húsið er möl í innkeyrslu og ca. 30 fm suðvestur sólpallur, á baklóð er hellulögð verönd og gras. 
Staðsetning: Smellið hér. 

Hér er um að ræða virkilega fallega og vel staðsetta eign. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús og náttúruna. Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is. 

Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.  
 

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

img
Hólmar Björn Sigþórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Helgafell fasteignasala ehf.
Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
img

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík