Lýsing
Kaupstaður fasteignasala ehf. kynnir fjölbýlishús í 101, Reykjavíkurborg
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Snyrtileg kjallaraíbúð í miðborginni
Vel skipulögð og hlýleg íbúð í miðbæ Reykjavíkur, nálægt allri helstu þjónustu, menningu og fallegum gönguleiðum. Eignin nýtist vel bæði sem fyrsta eign og fyrir þá sem vilja búa í notalegu og miðlægu umhverfi.
Íbúðin er með sérinngangi.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð og með góðu skipulagi.
Baðherbergi: Flísalagt með sturtu, vaski og snyrtilegri innréttingu.
Eldhús: Með flísum á gólfi, vönduðum innréttingum, eldavél með gashellum og tengingu fyrir uppþvottavél.
Stofa: Rúmgóð og björt með parketi á gólfi og pláss fyrir sjónvarpsaðstöðu.
Svefnherbergi: Þægilegt svefnrými innaf stofu með opnu fatahengi og skápaplássi.
Gestasnyrting: Sér gestasalerni með flísum og klósetti.
Sameiginlegt þvottahús: Aðgengi að þvottaaðstöðu í sameign.
Geymsla: Fylgir eigninni og er með hilluplássi.
Eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin og haldið hefur verið í einkenni og karakter þess tíma sem þetta fallega hús var byggt á.
Sérstaklega góð staðsetning í 101 Reykjavík, rólegt fjölskylduhverfi og stutt í alla þjónustu. Leik-, grunnskóli, háskólar og Tækniskóli í göngufæri. Góðar tengingar við stofnbrautir og gönguleiðir.
Hentug staðsetning og góð nýting á fermetrum gerir þessa eign að spennandi kosti fyrir þá sem vilja miðlæga og fallega íbúð með öllum helstu þægindum.
Nánari upplýsingar í síma 4540000 eða kaupstadur@kaupstadur.is
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.