Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Valshólar 2

111 Reykjavík

59.900.000 kr.

738.594 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2050133

Fasteignamat

47.200.000 kr.

Brunabótamat

37.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1979
svg
81,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu:  Valshólar 2 - falleg og sérlega björt 3ja herbergja endaíbúð á jarðhæð í litlu fjölbýli, sérsólpallur út frá stofunni. Húsið nýlega viðgert og málað að utan, nýlegir gluggar.  Góð staðsetning innan hverfis.

Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, finnbogi@heimili.is


Komið er inn í anddyri/hol með fallegu parketi og fatahengi. Þaðan er gengið inn í bjarta og rúmgóða stofu með parketi, þar sem hægt er að ganga út á sólpall sem snýr í suðvestur og býður upp á fallegt útsýni. Eldhúsið hefur verið nýlega endurnýjað og er með stílhreinni, hvítri innréttingu, borðkrók og parketlögðu gólfi. Innaf eldhúsinu er rúmgott þvottahús með innréttingu. Hjónaherbergið er með parketi og nýlegum fataskáp. Barnaherbergið er einnig með parketi og fataskáp. Baðherbergið er flísalagt með baðkari, innréttingu og nýlegu upphengdu salerni. Í sameign er sérgeymsla íbúðarinnar með hillum, auk þess er hjólageymsla. Sameignin er mjög snyrtileg með nýlegum teppum.
Samkvæmt nýjum eignaskiptasamningi (óþinglýstum) er stærð íbúðarinnar 74,3 fm og stærð geymslu 6,9 fm.  Heildarstærð eignarinnar er því 81,2 fm.

Töluvert viðhald og framkvæmdir hafa verið á eigninni sl. ár, m.a:
2024 
Hleðslustaurar fyrir rafbíla settir á bílaplan.
Skipt um teppi á stigagangi.
2023
Ytra byrði hússins sprunguviðgert og húsið allt málað.
Skipt um allt parket íbúðar og settur nýr fataskápur í hjónaherbergi.
2020
Sett ný eldhúsinnrétting og skipt um tæki.
Skipt um glugga og gler. 
2019
Smíðaður nýr sólpallur út af stofunni.
 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Finnbogi Hilmarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Finnbogi Hilmarsson

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. des. 2016
16.850.000 kr.
29.900.000 kr.
73.9 m²
404.601 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Finnbogi Hilmarsson

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík