Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þorbjörnsson
Kristinn Sigurbjörnsson
Haukur Andreasson
Elín Frímannsdóttir
Helgi Bjartur Þorvarðarson
Vista
fjölbýlishús

Þórufell 10

111 Reykjavík

53.900.000 kr.

680.556 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2052030

Fasteignamat

46.000.000 kr.

Brunabótamat

36.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1971
svg
79,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 20. maí 2025 kl. 18:00 til 18:30

Opið hús: Þórufell 10, 111 Reykjavík, Íbúð merkt: 05 04 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 20. maí 2025 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.

Lýsing

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu fallega og bjarta 3ja herbergja íbúð á efstu hæð við Þórufell í Reykjavík. Samkvæmt Þjóðskrá er íbúðin 73,3 fm að stærð og fylgir henni sér geymsla í sameign, 5,9 fm, samtals 79,2 fm.

Eignin hefur fengið gott viðhald. 
Nýtt þak er á húsinu, nýlegir gluggar að hluta, nýleg gólfefni og innihurðar.


Nánari lýsing:
Forstofa / hol: Komið er inn í snyrtilega forstofu með plastparketi á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með parketi. Þaðan er gengið út á svalir með fallegu útsýni yfir borgina.
Eldhús: Hvít og snyrtileg innrétting, flísar á milli skápa og flísalagt gólf. Borðkrókur við gluggann.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott með parketi.
Barnaherbergi: Einnig bjart með parketi og fataskáp.
Geymsla: Sér geymsla í sameign. Auk þess eru hjóla- og vagnageymsla í sameign.

Eignin er vel staðsett í rólegu hverfi með fallegu útsýni yfir Reykjavík. Sameign er snyrtileg og öll þjónusta innan seilingar — stutt í skóla, leikskóla, verslanir og aðra helstu þjónustu.

Upplýsingar veita:
Helgi Bjartur Þorvarðarsson
Lögfræðingur / Löggiltur fasteignasali
Sími: 770-2023
Netfang: helgi@allt.is
Elín Frímannsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Sími: 867-4885
Netfang: elin@allt.is

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

img
Elín Frímannsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

phone
img

Elín Frímannsdóttir

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. feb. 2020
30.350.000 kr.
31.300.000 kr.
79.2 m²
395.202 kr.
14. jún. 2017
20.500.000 kr.
30.000.000 kr.
79.2 m²
378.788 kr.
1. nóv. 2012
12.900.000 kr.
15.227.000 kr.
79.2 m²
192.260 kr.
7. mar. 2012
12.900.000 kr.
14.432.000 kr.
79.2 m²
182.222 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

phone

Elín Frímannsdóttir