ÍBÚÐ 105. Sveinn Eyland lögg.fasteignasali á staðnum.
Lýsing
Virkilega fallega vel skipulagða 79,3 fm. 3ja herbergja endaíbúð á 1. hæð með sérinngang af svölum.
Eignin hefur fengið afar gott viðhald að utan á síðustu árum. Tvö rúmgóð svefnherbergi og rúmgóð stofa.
Eldhús með fallegri innréttingu. Baðherbergi með flíslagðri sturtu og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara þar inni.
Sameign mjög snyrtileg. Fallegt útsýni úr íbúðinni.
ÍBÚÐ GETUR VERIÐ LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
Nánari upplýsingar eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg. fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is
FÁÐU SÖLUYFIRLIT SENT STRAX HÉR.
Eignin skiptist í:
Forstofu, miðrými, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, sameiginlegt þvottahús og sérgeymslu í kjallara.
Útgengt á stórar suðvestursvalir bæði frá stofu og hjónaherbergi.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.
Miðrými: Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgóðar og bjartar með parket á gólfi, útgengt á stórar suðvestursvalir. Fallegt útsýni frá stofu.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð herbergi bæði með parket á gólfum og fataskápar í báðum. Útgengt frá öðrum herbergi á stórar suðvestursvalir.
Eldhús: Falleg viðar innrétting, flísar á gólfi. Góður borðkrókur við glugga. Uppþvottavél fylgir.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta af veggjum. Flísalagður sturtubotn og sturta aðskilin með öryggisgleri. Falleg innrétting í kringum handlaug, speglaskápur. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara þar inni. Opnanlegur gluggi.
Sérgeymsla í kjallara.
Í sameign hússins er hjóla og vagna geymsla ásamt sameiginlegu þvottahúsi og íbúð sem er í útleigu. Leigutekjur renna í hússjóð.
Hússjóður stendur vel og er leigurými sem tilheyrir sameign hússins þar sem leiga rennur í hússjóð.
Um er að ræða góða og vel staðsetta eign, örstutt í leik- og grunnskóla og öll önnur þjónusta skammt frá.
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat