Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2017
svg
160,3 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 19. maí 2025 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús: Vogatunga 50, 270 Mosfellsbær. Eignin verður sýnd mánudaginn 19. maí 2025 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

** Opið hús mánudaginn 19. maí frá kl. 16:30 til 17:00 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt og vel skipulagt 160,3 m2 endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á fallegum útsýnisstað. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, bílskúr, geymslu, forstofu, eldhús, stofu og borðstofu. Gott geymsluloft er í bílskúr (ca 12 m2 sem er ekki í fermetratölu eignarinnar). Gott skipulag, fallegar innréttingar og gólfefni. Mikil lofthæð og innbyggð lýsing. Stórt steypt bílaplan með snjóbræðslu og hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Mjög stór timburverönd með heitum potti og fallegu útsýni. Eignin er skráð 160,3 m2, þar af raðhús 132,5 m2 og bílskúr 27,8 m2.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.


Nánari lýsing:
Forstofa: Er með fataskápum og flísum á gólfi.
Gangur: Er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi): Er með fataskápum og parketi á gólfi. Úr hjónaherbergi er gengið út á timburverönd.
Svefnherbergi nr. 2: Er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3: Er með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu, vegghengdu salerni, sturtu og baðkari. Gluggi er á baðherbergi.
Eldhús, stofa og borðstofa: Er í björtu opnu rými með parketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg U-laga innrétting. Í innréttingu er innbyggður kæliskápur, innbyggð uppþvottavél, blástursofn, örbylgjuofn, spanhelluborð og háfur. Mikil lofthæð og innbyggð lýsing. Í stofu er sjónvarpsskenkur, vatnsgufu arinn og hljóðdempandi plötur frá Ebson.
Þvottahús: Er með innréttingu og vinnuborði. Flísar á gólfi.
Bílskúr: Er rúmgóður með epoxý málningu á gólfi og góðu geymslulofti (ca 12 m2). Rafdrifinn bílskúrshurðaopnari, rafmagn, hiti og rennandi vatn.
Geymsla: Er inn af bílskúr með dúk á gólfi. Er í dag notuð sem vinnuherbergi. Úr geymslu er stigi upp á geymsluloftið.

Verð kr. 127.500.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. maí. 2022
74.800.000 kr.
102.500.000 kr.
160.3 m²
639.426 kr.
1. mar. 2018
30.950.000 kr.
56.900.000 kr.
160.3 m²
354.959 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ