Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 83,2 m2, 3ja herbergja íbúð á 4. hæð(efsta hæð í þessum hluta hússins) með fallegu útsýni og bílastæði í bílageymslu í lyftuhúsi við Bjarkarholt 7 í miðbæ Mosfellsbæjar. Húsið er byggt 2020. Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning.
Eignin er skráð 83,2 m2, þar af íbúð 79,8 m2 og geymsla 3,4 m2. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús og stofu/borðstofu. Sérgeymsla í kjallara. Svalir í vesturátt með fallegu útsýni. Frábær staðsetning í miðbæ Mosfellsbæjar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa: Er með flísum á gólfi og fataskápum.
Eldhús, stofa og borðstofa: Er saman í rúmgóðu opnu rými með gluggum á þremur hliðum og parketi á gólfi. Falleg eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél, bakaraofni, helluborði og viftu. Gengið út á svalir í vesturátt frá stofu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi): Er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2: Er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: Er með flísum á gólfi og á veggjum að hluta. Vegghengt salerni, handklæðaofn, sturta, innrétting og skápar. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign í kjallara, merkt 0036 skráð 3,4 m2.
Bílastæði: Bílastæði í bílageymslu merkt B23 fylgir eigninni.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla: Er í kjallara hússins.
Góð staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Matvöruverslun er á fyrstu hæð.
Verð kr. 69.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.