Lýsing
Eignin skiptist í: Forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, svalir, geymslu og sérstæði í bílskýli.
Íbúðin var endurnýjuð að innan árið 2018:
* Eldhús endurnýjað með fallegri hvítri innréttingu frá Ikea, bökunarofn, uppþvottavél, örbylgjuofn, spanhelluborð og háfur.
* Baðherbergi endurnýjað, skipulagi breytt og ný innrétting sett upp fyrir þvottavélar. Allt rými flísalagt, nýr vaskur, skápar og sturtuaðstaða.
* Allar innihurðir með fellilista og fallegt harðparket, hvort tveggja frá Birgisson.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísalögðu gólfi og stórum loftháum skápum.
Stofan er stór og björt með útgengt á góðar og sólríkar svalir.
Eldhús er rúmgott með L-laga innréttingu. Falleg hvít innrétting með bakarofni í vinnuhæð, innbyggðri uppþvottavél og góðu vinnuplássi.
Svefnherbergi 1 er rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Barnaherbergi 2 með harðparketi á gólfi, glugga á tveimur hliðum og fataskáp.
Barnaherbergi 3 með harðparketi á gólfi, glugga á tveimur hliðum og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Upphengt klósett með sturtu, handlaug og veggskápar. Þvottaaðstaða inni á baðherbergi með tæki í góðri vinnuhæð og nóg af skápum.
Geymsla / vagna- og hjólageymsla: Á jarðhæð í suðurenda hússins er 4,8 fm sérgeymsla og í norðurenda hússins er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Garður: Framan við húsið er hellulögð stétt, malbikuð bílastæði, sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni, gróinn sameiginlegur garður er umhverfis húsið.
Annað:
Mjög góð og fjölskylduvæn staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu s.s. matvöruverslanir, íþróttasvæði, leik- og grunnskóla. Fjölbreytt verslun í nágrenni og náttúrusvæði. Þetta er eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir:
Einar Örn Ágústsson - löggiltur fasteignasali
einar@fastgardur.is / sími 888-7979
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður