Opið hús: Logafold 20, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 27. maí 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
*** Áhugasamir bókið skoðun hjá sigridur.lind@heimili.is eða í síma 8994703 ***
Nánari lýsing:
Hol/forstofa: Mjög rúmgott með góðri vinnuaðstöðu og góðu skápaplássi. Úr holi er gengið í aðrar vistarverur hússins.
Eldhús: er bjart með ljósri innréttingu og flísum milli skápa. Góður borðkrókur með glæsilegum útsýnisglugga yfir Grafarvoginn. Nýtt spanhelluborð og nýr veggofn. Úr eldhúsi er útgengt á suður svalir, mikið viðsýni.
Þvottahús: Inn af eldhúsi er sér þvottahús. Skolvaskur, vinnuborð. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: eru í sameiginlegu rými sem er opið bæði við eldhús og hol. Stórir gluggar. Íbúðin er endaíbúð og því gluggar á þrjá vegu.
Herbergi I: Rúmgott með góðu skápaplássi.
Herbergi II: Rumgott. Lítill fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og þiljur á veggjum. Sturtuklefi. Snyrtileg hvít innrétting með handlaug, spegli og innfelldri lýsingu.
Stæði í bílskýli: Íbúðinni fylgir sér stæði í upphitaðri og lokaðri bílageymslu sem er við hlið hússins. Þvottaaðstaða.
Geymsla: Sér geymsla í sameign um 4 fm, er ekki skráð í fermetratölu eignar samkvæmt fasteignayfirliti.
Sameiginleg vagn og hjólageymsla er einnig í kjallara hússins.
2020 Allir ofnar í íbúðinni endurnýjaðir.
2025 nýtt Harðparket (12 mm Sundance Oak Pure, frá Byko) lagt á alla íbúðina.
Um er að ræða einstaklega bjarta og vel skipulagða útsýnisíbúð á eftirsóttum stað í Grafarvogi. Stutt er í leik- og grunnskóla, sundlaug og íþróttasvæði. Frábærar gönguleiðir meðfram ströndinni og allt um kring í Grafarvoginum. Nánari upplýsingar veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 899 4703 eða sigridur.lind@heimili.is
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.