Lýsing
Miklaborg kynnir: Bjarta 3ja herbergja jarðhæð með sérinngangi og suðurpalli að Sólarsölum 1 í Salahverfinu í Kópavogi. Eignin sem er skráð 105,2 fm skiptist í forstofu, þvottahús, stofu, tvö svefnherbergi og geymslu. Útgengi er úr stofu á skjólgóðan suðurpall. Sjarmerandi eign á vinsælum stað í Salahverfinu, þar sem grunnskóli, leikskóli, íþróttaaðstaða, sundlaug og verslun eru í næsta nágreni.
***Eignin verður ekki sýnd fyrir opið hús***
Nánari lýsing
Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur.
Hjónaherbergi: Er 13,1 fm með fataskáp. Parket á gólfi.
Barnaherbergi: Er 11,8 fm með fataskáp. Parket á gólfi.
Stofa: Parket á gólfi og útgengt út á stóran og góðan suðurpall.
Eldhús: Er með góðu skápa- og vinnuplássi. Borðkrókur er inn af eldhúsi. Flísar á gólfi.
Baðherbergi: Er með góðu skápaplássi, baðkari og sturtu. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Er með góðri innréttingu, flísar á gólfi.
Geymsla: Er 6 fm og er innan íbúðar.
Á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Hitalagnir eru í stiganum og rampinum úti.
Allar nánari upplýsingar veita
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is
Þröstur Þórhallsson löggiltur fasteignasali í síma 897-0634 eða throstur@miklaborg.is