Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Pálmason
Vista
fjölbýlishús

Trönuhjalli 7

200 Kópavogur

67.900.000 kr.

875.000 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2065641

Fasteignamat

59.100.000 kr.

Brunabótamat

40.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1990
svg
77,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 1. júní 2025 kl. 13:00 til 13:45

Opið hús: Trönuhjalli 7, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 04 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 1. júní 2025 milli kl. 13:00 og kl. 13:45.

Lýsing

Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna vel skipulagða og bjarta 82,4fm, 3ja herbergja útsýnisíbúð á 4. hæð  að Trönuhjalli 7, 200 Kópavogur, nánar tiltekið eign merkt 04-01, fastanúmer 206-5641 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Húsið er steinsteypt með timburþaki á steyptri plötu, byggt árið 1990. Í stigagangi eru samtals 9 íbúðir. Húsið samanstendur af 3 stigagöngum, Trönuhjalla 7-11 og stendur á 3616fm lóð. Sameign öll hin snyrtilegasta. Góð aðkoma er að húsi á bílaplan með sameiginlegum bílastæðum að undanskildum bílastæðum við bílskúra.

Fasteignamat eignar fyrir árið 2026 skv. HMS verður 62.950.000kr.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@fastm.is

Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, 2 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og sér geymslu í sameign á jarðhæð. Afar vel skipulögð og björt íbúð með 2 rúmgóð svefnherbergi í norður enda íbúðar. Rúmgóð björt stofu og eldhús í suður endanum með stórum fallegum gluggum með glæsilegu útsýni. Útgengt er út á rúmgóðar og sólríkar suðursvalir úr stofu. Skipt var um allt gler í íbúð nema einn lítinn glugga (opnanlegt fag) í svefnherbergi á árunum 2015-2018.


Staðsetning eignar er mjög góð í vinsælu og grónu hverfi miðsvæðis í suðurhlíðum Kópavogs með leik- og grunnskóla í göngufæri ásamt afar fjölbreyttri verslun og þjónustu.

Eignin Trönuhjalli 7 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 206-5641, birt stærð 77.6 fm. Eigninni fylgir 4.8 fm geymsla merkt 03-01 á teikningu. Geymsla er ekki skráð inn í FMR eignar. Samtals er eignin með geymslu 82,4 fm.

* Hús var múrviðgert og málað á árunum 2020/2021
, 
* Járn á þaki endurnýjað 2023
* Skipt var um gler í stigagangi 2018, sett þriggjalaga gler. 

* Teppi á stigagangi endurnýjað 2023

Nánari lýsing:
Anddyri:
Flísalagt með innbyggðum þreföldum skápum.
Eldhús: Ljós innrétting með efri og neðri skápum, viðarplata á eldhúsbekk. Gott skápa og vinnupláss og borðkrókur. Spanhelluborð innfellt í borðplötu og ofn í vinnuhæð. Aðstaða í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél. Hálf opið og í góðri tengingu við stofu. Glæsilegt útsýni til suðurs úr eldhúsi. 
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með stórum og fallegum gluggum sem innramma stórglæsilegt útsýni til suðurs. Útgengt út á rúmgóðar svalir til suðurs. Góð tenging við eldhús.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Bað með sturtu, klósett og baðinnrétting með upphengdum skápum og innfeldum vaski. Aðstaða fyrir þvottavél.
Svefnherbergi I: Rúmgott með innfeldum skápum. Gott skápapláss.
Svefnherbergi II: Rúmgott með innfelldum skápum. Gott skápapláss.
Geymsla: Sérgeymsla eignar er í sameignargangi á jarðhæð. 4,8fm að gólffleti.

Gólfefni: Flísar á gólfi í anddyri, eldhúsi og baðherbergi. Parket á öðrum rýmum íbúðar.

Sameign: Sér geymsla eignar er á sameignargangi á jarðhæð. Sameiginleg vagna og hjólageymsla.

Lóð: Hús stendur á 3616fm lóð. Garður er gróinn með grasi og fjölærum plöntum. Snjóbræðslukerfi er í stétt framan við hús. Leiksvæði með rólum og rennibraut er að framanverðu. eru óskiptri sameign að undanskildum bílastæðum við bílskúra.

Bílastæði: Bílastæði eru í óskiptri sameign að undanskildum bílastæðum við bílskúra.

Húsfélagsgjöld: 20.678kr. Er það fyrir bæði stigagang og stóra húsfélagið Trönuhjalli 7-11.

Góð 3ja herbergja útsýnisíbúð í vinsælu hverfi miðsvæðis í suðurhlíðum Kópavogs með alla helstu verslun og þjónustu í nágrenninu, leik- og grunnskóla ásamt rómuðu íþróttastarfi Kópavogsklúbbana tveggja Breiðablik og HK. 

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur hreidar@fasteignamidlun.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Fasteignamiðlun

Fasteignamiðlun

Grandagarði 5, 101 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. nóv. 2016
24.000.000 kr.
32.800.000 kr.
77.6 m²
422.680 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignamiðlun

Fasteignamiðlun

Grandagarði 5, 101 Reykjavík