Lýsing
Um er að ræða fallegt og vel skipulagt 3 herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr á góðum stað í hjarta Þorlákshafnar. Birt stærð eignar er 108,8 fm og þar af er íbúðarhluti 78,8 fm og bílskúr 30 fm. Fallegur garður með suður sólpall. Frábær staðsetning þar sem stutt í alla helstu þjónustu s.s. skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og verslanir.
Skipulag eignar: Anddyri, í alrými er stofa / borðstofa / eldhús , 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsla og bílskúr.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENDT SÖLUYFIRLIT STRAX
Lýsing eignar:
Anddyri: Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskáp.
Stofa / borðstofa: Í alrými, rúmgóð og björt, útgengi út á suður sólpall, flísar á gólfi.
Eldhús: Í alrými með góðri innréttingu, flísar milli skápa, bakaraofn, háfur, helluborð, hátt til lofts, flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott herbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Með hvítri innréttingu og veggskáp, sturta, handklæðaofn, flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús: Vinnuborð og veggskápur, skolvaskur, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gönguhurð inn í bílskúr, flísar á gólfi.
Bílskúr / geymsla: Bílskúrinn er 30 fm, rafdrifin bílskúrhurðaopnari, hiti, kalt vatn, flísar á gólfi, gönguhurð út á suður sólpall, innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi. Geymsla er teiknuð í enda bílskúrs.
Húsið: Er byggt 2002 og er timburhús frá SG hús á Selfossi.
Lóð: Framan við húsið eru malbikuð stæði, gras á austur og suðurhlið svo og stór suður sólpallur.
Staðsetning: Smellið hér.
Athugið að seljendur hafa ekki búið í húsinu og þekkja þarf af leiðandi ekki ástand hennar til hlítar. Kaupendur eru því hvattir til að skoða eignina með það í huga og leita sér aðstoðar fagmanns.
Hér er um að ræða einstaklega áhugaverða og vel staðsetta eign miðsvæðis í Þorlákshöfn. Stutt í alla helstu þjónustu s.s. skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og verslanir.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.
Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.