Lýsing
Miklaborg kynnir: Mjög vel staðsett 191,3 fm parhús staðsett neðst í Úlfársárdal í nálægð við skóla, leikskóla, sund og íþróttasvæði Fram. Eignin telur á efri hæð: stofur, eldhús, snyrtingu og bílskúr en á neðri hæð 4 svefnherbergi, baðherbergi, sjónvarpshol og þvottahús. Húsið stendur neðan götu og er lóðin fullbúin með lokuðum garði og ágætis útsýni er frá eftir hæðinni.
Efri hæð. Forstofugangur með fataskápum. Gestasnyrting flísalögð í hólf og gólf, innrétting með vask og granítborðplötu. Innangengt er í bílskúr sem er með litlu millilofti innst, flísalögðu gólfi og rafstýrðri hurð. Stofurými með mikilli lofthæð og útgengi er út á stórar svalir þaðan. Eldhús er staðsett við hlið stofu og borðstofu. Glæsilegar innréttingar og mikið skápapláss, eyjuborð, tæki frá Miele og granít á öllum borðum. Aðstaða fyrir amerískan ísskáp.
Neðri hæð. Góður stigi niður á neðri hæð. Fjögur svefnherbergi, þarf af þrjú með fataskápum. Útgengi frá hjónaherbergi út í garð. Glæsilegt baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi og hornbaðkar. Stór og mikil innrétting með vask og granít á borði. Inn af sjónvarpsherbergi er geymsla og þvottahús sem er með flísalögðu gólfi og einum vegg. Gólfhitakerfi í öllu húsinu með nýjustu gerð af stjórnstöð og hitanemum frá Danfoss.
Góður aflokaður garður með skjólveggjum og hellulagðri verönd er á baklóð og til hliðar við húsið. Framhlið hússins er einnig hellulögð og er snjóbræðsla í aðkomu.
Upplýsingablað seljanda um ástand eignarinnar er hægt a nálgast hjá fasteignasölunni
Fallegt og fjölskylduvænt hús á besta stað í Úlfarsárdal!
Nánari upplýsingar gefur
Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is