Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
svg

164

svg

147  Skoðendur

svg

Skráð  3. jún. 2025

parhús

Úlfarsbraut 58

113 Reykjavík

144.500.000 kr.

755.358 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2299363

Fasteignamat

124.150.000 kr.

Brunabótamat

91.460.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
191,3 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Nýtt á skrá! Úlfarsbraut 58 Reykjavík - Bókið skoðun.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir virkilega fallegt og bjart 6 herbergja parhús á tveimur hæðum við Úlfarsbraut 58 í Reykjavík. Húsið, sem er byggt árið 2007, er alls 191,3 fermetrar að stærð og þar af 22,8 fermetra innbyggður bílskúr. Húsið er afar sjarmerandi, með aukinni lofthæð og rúmgóðum afgirtum bakgarði til suðurs. Stórar svalir til suðurs og austurs með fallegu útsýni yfir Úlfarsárdalinn og upp í Grafarholt. Stórir gólfsíðir gluggar eru í stofu efri hæðar sem hleypa inn mikilli birtu. Húsið er fallega steinað og með harðviðargluggum. Gólfhiti er í öllu húsinu.

Fjögur svefnherbergi eru í húsinu. Gestasnyrting á efri hæð og aðal baðherbergi á neðri hæð. Eldhús, sem er með vönduðum innréttingum og tækjum, er opið við stofu/borðstofu aðalhæðar með útgengi á stórar u.þ.b. 20 fermetra svalir með gler svalahandriðum. Mikil lofthæð er yfir aðalhæð með innfelldum ljósum. Innangengt í bílskúr frá forstofu. Þvottaherbergi og geymsla er staðsett á neðri hæð. Einungis einn eigandi frá upphafi og verið er að klára lokaúttekt á húsinu sem greiðist af seljanda.

Lóðin er falleg og viðhaldslítil. Hellulögð stétt og bílastæði með snjóbræðslu fyrir framan hús. Rúmgóð afgirt hellulögð verönd til suðurs með kvöldlýsingu. Staðsetning hússins er afar góð í rólegri barnvænni götu (lokuðum botnlanga). Mikil nálægð við skóla, leikskóla, sundlaug og íþróttasvæði Fram. Frábærir útvistamöguleikar þar sem húsin standa í næsta nágrenni við Leirtjörn og Úlfarsfell. 

Nánari lýsing:

Efri hæð:
Forstofa: Er rúmgóð með flísum á gólfi og góðum skápum. Gólfhiti og innfelld lýsing í lofti.
Baðherbergi I (gestasnyrting): Er flísalagt í gólf og veggi. Upphengt salerni og innrétting við vask með steini á borðum. Opnanlegur gluggi til norðurs.
Eldhús: Með flísum á gólfi og gólfhita. Falleg eldhúsinnrétting frá Brúnás með góðu skápaplássi, eyju og steini á borðum. Aukin lofthæð og Innfelld lýsing í loftum. Tvöfaldur Samsung kæliskápur, Miele helluborð, innb. Miele uppþvottavél, Miele bakaraofn og Elica háfur. Eldhús er opið stofu/borðstofu og með gluggum til norðurs og austurs.
Stofa: Með parketi á gólfi og stórum gólfsíðum gluggum til suðurs og austurs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi á stórar svalir til suðurs.
Svalir: Eru stórar (um 20 fermetrar), með fallegu glerhandriði, sem snúa inn í bakgarð.

Bílskúr: Er 22,8 fermetrar að stærð og mjög snyrtilegur. Inngengt frá forstofu og flísar á gólfi. Rafmagnsopnum á bílskúrshurð og gólfhiti. Geymsluloft yfir hluta og heitt/kalt vatn.

Neðri hæð: Gengið niður á neðri hæð um steyptan parketlagðan stiga með kvöldlýsingu í veggnum.
Sjónvarpsstofa: Með parketi á gólfi
Hjónaherbergi: Er rúmgott og með parketi á gólfi. Góðir skápar og útgengi á hellulagða verönd til austurs (sem tengist verönd til suðurs).
Baðherbergi II: Með flísum á gólfum og veggjum. Baðkar með innb. Grohe sturtutækjum. Sturta með innb. Grohe sturtutækjum. Falleg innrétting við vask með steini á borðum. Upphengt salerni og handklæðaofn. Gluggi til austurs og innfelld lýsing í lofti.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi, skápum og stórum glugga til suðurs.
Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi, skápum og gluggum til austurs/suðurs.
Svefnherbergi IV: Með parketi á gólfi og glugga til suðurs
Þvottaherbergi: Flísar á gólfi og tenglar fyrir þvottavél/þurrkara. Þvottasnúrur.
Geymsla: Með parketi á gólfi.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.

img
Heimir Hallgrímsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. des. 2010
32.900.000 kr.
40.000.000 kr.
191.3 m²
209.096 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur