OPIÐ HÚS AÐ BRATTHOLTI 5, 220 HAFNARFIRÐI, ÞRIÐJUDAGINN 3. JÚNÍ FRÁ KL. 12:15 - 13:00. ALLIR VELKOMNIR!!
Lýsing
Mjög vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í fallegu 3ja hæða fjölbýlishúsi við Brattholt 5 í Hafnarfirði. Útsýni úr íbúðinni er frábært. Stutt er í skóla, leikskóla og golfvöllinn. Nýlegur dyrasími með myndavél. Birtar stærðir skv. HMS: Íbúðin er 81,6 m2 merkt 03-01 og geymslan er 5,6 fm merkt 00-07, samtals 87.2 m2 að stærð. Að sögn seljanda var húsið sprunguviðgert og málað árið 2023 og einnig er búið að skipta um glugga og gler á suðurhlið hússins ásamt svalahurð. Þakið hefur einnig verið yfirfarið og lagfært það sem á þurfti.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT OG ALLAR FREKARI UPPLÝSINGAR
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu, fataskápur. Á hægri hönd við inngang er þvottahús. Frá forstofu tekur við hol / miðrými með parketi á gólfi. Tvö svefnherbergi og er annað þeirra með fataskáp. Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, Walk-in sturta, neðri skápur, upphengt salerni og handklæðaofn. Björt stofa með útgangi út á svalir með glæsilegt útsýni. Eldhús með hvítri snyrtilegri innréttingu með beyki könntum, borðkrókur. Fallegt útsýni einnig frá eldhúsglugga. Eigninni fylgir sérgeymsla í sameign ásamt aðgengi að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Gólfefni íbúðar: parket að mestu á gólfum fyrir utan dúk á þvottahúsi og flísum á baðherbergi.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
Umsagnir viðskiptavina HÉR
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram
Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat