Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2004
89 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Opið hús: 2. júní 2025
kl. 18:00
til 18:30
Opið hús: Þórðarsveigur 18, 113 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 03 03. Eignin verður sýnd mánudaginn 2. júní 2025 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.
Lýsing
Nýtt á skrá! Opið hús - Þórðarsveigur 18 Reykjavík - mánudaginn 2. júní klukkan 18:00 - 18:30.
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir fallega og vel skipulagða 3ja herbergja 89,0 fermetra íbúð á 3. hæð í snyrtilegu og vel viðhöldnu fjölbýli með lyftu byggðu árið 2004 við Þórðarsveig 18 í Reykjavík. Íbúðin er með góðum svölum til suðvesturs og sérbílastæði í lokuðum og upphituðum bílakjallara með tilbúnum grunni fyrir rafhleðslukerfi. Þvottastæði er til staðar í bílakjallara. Þvottaherbergi innan íbúðar. Geymsla með glugga er inn af íbúð (sem væri hægt að nýta sem lítið barnaherbergi) ásamt sérgeymslu sem er staðsett í kjallara.
Hellulagðar stéttar fyrir framan hús og malbikuð sameiginleg bílastæði. Tyrfð og hellulögð baklóð með leiktækjum og bekkjum. Sameign er snyrtileg og til fyrirmyndar.
Staðsetning hússins er frábær í rólegri barnvænni götu. Sundlaug (Dalslaug), golfvöllur (Grafarholtsvöllur), grunnskóli (Sæmundarskóli) og leikskóli (Geislabaugur og Reynisholt) í göngufjarlægð. Stutt í íþróttasvæði Fram. Frábærir útivistamöguleikar allt í kring og fallegar göngu og hjólaleiðir, m.a. við Reynisvatn og Úlfarsá.
Lýsing eignar:
Forstofa: Með flísum á gólfi og skápum.
Alrými samanstendur af stofu og eldhúsi sem er opið að hluta við stofu.
Eldhús: Með flísum á gólfi, eldhúsinnréttingu með flísum á milli skápa. AEG stál bakaraofn, AEG keramik helluborð og Electrolux uppþvottavél. Gluggi til austurs.
Stofa: Er rúmgóð og með parketi á gólfi. Stofa rúmar setustofu og borðstofu. Gluggar til vesturs og útgengi á svalir.
Svalir: Eru skjólagóðar og snúa til vesturs (suðvesturs) inn í bakgarð hússins.
Hjónaherbergi: Með parketi á gólfi, skápum og gluggum til vesturs.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi og glugga til austurs.
Geymsla I/lítið herbergi/skrifstofa: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til austurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum. Falleg innrétting við vask. Upphengt salerni og gluggi til norðurs.
Þvottaherbergi: Er staðsett innan íbúðar. Flísar á gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi til austurs.
Bílastæði: Í lokuðum og upphituðum bílakjallara. Þvottastæði og grunnkerfi fyrir rafhleðslu komin upp.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla: Er stór og er staðsett í sameign hússins. Málað gólf.
Geymsla II: Er staðsett í kjallara og er 4,1 fermetrar að stærð. Málað gólf, hillur og gluggi til austurs.
Allar nánari upplýsingar veita:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. apr. 2024
62.300.000 kr.
62.000.000 kr.
89 m²
696.629 kr.
5. maí. 2014
21.850.000 kr.
25.900.000 kr.
89 m²
291.011 kr.
9. sep. 2010
20.200.000 kr.
21.000.000 kr.
89 m²
235.955 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025