Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Sigtún 35

105 Reykjavík

75.900.000 kr.

855.693 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2019290

Fasteignamat

69.850.000 kr.

Brunabótamat

40.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1948
svg
88,7 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu:  Falleg og björt íbúð í risi við Sigtún í Reykjavík. Allt að fjögur svefnherbergi og stofur. Eign sem er töluvert endurnýjuð. Hús í mjög góðu ástandi og mikið endurnýjað.  Frábær staðsetning við Laugardalinn.  Íbúðin er skráð 88,7 fm að stærð en gólfflötur hennar er töluvert mikið stærri þar sem hluti íbúðar er undir súð.

Allar frekari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir fasteignasali, as@heimili.is


Komið er inn í húsið um sameiginlegan inngang, stigagangur hefur verið endurnýjaður og eru m.a. nýleg teppi.  Komið er upp á pall fyrir framan inngang íbúðarinnar og nýtist hann vel sem fatahengi. Þegar komið er inn í íbúðina er gengið inn á parketlagðan gang, innfeldar hillur. Eldhús sem hefur verið endurnýjað fyrir nokkrum árum m.a. nýjar borðplötur og vaskur, parket á gólfi, fallegt útsýni til norðurs, búið er að koma fyrir aðstöðu fyrir þvottavél/þurrkara.  Stofa og borðstofa með parketi, falleg hvít glerhurð er á miliii stofanna, innri stofan getur nýst sem svefnherbergi. Þrjú parketlögð svefnherbergi, innfeldir skápar eru í tveim þeirra. Baðherbergi með flísum og upphengt salerni, ný innrétting og rúmgóð sturta sem gengið er inní, gluggi er á baðherberginu.  Innangengt er úr íbúðinni uppá geymsluloft í risinu. Allt parket á gólfum er gegnheilt eikarparket.  Í sameign er sérgeymsala íbúðarinnar og sameiginlegt þvottahús. Einnig er lítil geymsla þar sem geymd eru hjól og garðáhöld. Stór og falleg sameiginleg lóð í góðri rækt.
Teikningar eru til af stækkun á kvistgluggum og gert er ráð fyrri að setja svalir út frá stofunn. Teikningar sem hafa verið unnar fylgja með til nýrra eigenda, en sækja þarf um öll leyfi o.s.frv.  

Vatnslagnir voru endurnýjaðar árið 2005 og yfirfarnar árið 2023.
Dregið var í nýtt rafmagn og tafla endurnýjuð árið 2013.
Skólp og dren var endurnýjað árið 2014 ásamt því að garðurinn var tekinn í gegn.
Árið 2017 var húsið tekið í gegn að utan og steypuviðgert og endursteininað. Á sama tíma var þakkantur steyptur upp á nýtt.
Þak hússins var endurnýjað árið 2022. Á sama tíma var skipt um glugga og gler í hjónaherbergi ásamt því að skipt var um gler í glugga í borðstofu.

Mjög góð staðsetning rétt við Laugardalinn. Göngufæri í Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla, leikskóla og íþróttaaðstöðu Þróttar og Ármanns í Laugardal.  Stutt í Kaffi Laugalæk, Pylsumeistarann, Brauð og Co, Fiskbúðina, Ísbúðina, Laugardalslaugina, Heilsugæsluna á Kirkjusandi, alla útivist í Laugardalnum. 
 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. maí. 2024
67.750.000 kr.
68.500.000 kr.
10301 m²
6.650 kr.
13. feb. 2020
43.900.000 kr.
46.500.000 kr.
88.7 m²
524.239 kr.
5. mar. 2013
22.200.000 kr.
25.500.000 kr.
88.7 m²
287.486 kr.
19. júl. 2007
16.960.000 kr.
25.000.000 kr.
88.7 m²
281.849 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone