Lýsing
Tveggja herbergja íbúða á 3. hæð í fjölbýlishúsi ásamt sérgeymslu í kjallara.
Komið inn í hol með parketi á gólfi, gamall fataskápur með rennihurðum á gangi.
Eldhús með hvítri innréttingu, helluborð og ofn, parket á gólfi. Innrétting er frá Ikea.
Rúmgóð stofa með parketi á gólfi, útgengt út góðar suðursvalir, gott útsýni.
Baðherbergi er upprunalegt, baðkar með sturtu, dúkur á gólfi.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Ágæt geymsla í kjallara.Íbúðin er skráð 68,4 m² og geymsla í kjallara er skráð 9,6 m².
Sameiginlegt þvotta og þurrkherbergi í kjallara.
Athygli er vakin á því að seljandi hefur ekki búið í eigninni og þekkir því ekki ástand hennar að öðru leyti en fram kemur í söluyfirliti sem er fylgiskjal með kauptilboði/kaupsamningi og sem tilboðsgjafi staðfestir að hann hafi kynnt sér með undirritun. Seljandi getur ekki veitt frekari upplýsingar um ástand hennar en hægt er að kynna sér við almenna skoðun og skv. söluyfirliti. Eignin selst í því ástandi sem hún er í og mun seljandi ekki gera neinar endurbætur né þrif á henni fyrir sölu. Væntanlegum kaupendum er því bent á að skoða eignina með það í huga.
Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.