Lýsing
Miklaborg kynnir: Fallegt 131 fm enda raðhús með bílskúr við Brúnastaði 7, Reykjavík. eingin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, baðherbergi, tvö til þrjú svefnherbergi, eldhús, þvottahús, geymslu og bílskúr.
Nánari lýsing
Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Stofa og borðstofa með góðum gluggum til suð-austurs og útgengi út á stóran pall og garð, sjónvarpsrými er inn af stofu sem er mögulegt að breyt í þriðja svefnherbergið. Í eldhúsi er góð innrétting með ofni í vinnuhæð, helluborði, háf og plássi fyrir uppþvottavél, ísskáp og örbylgjuofn. þvottahús með flísum á gólfi og útgengi út í garð, inn af þvottahúsi er geymsla. Barnaherbergi með fataskáp og góðum glugga. Hjónaherbergi með fataskáp og góðum glugga. Baðherbergi með salerni, handklæðaofni, innréttingu með spegli og góðum sturtuklefa. Bílskúr er með flísum á gólfi, geymslu-lofti, innkeyrslu og gönguhurð. fyrir framan húsið er hellulagt bílaplan fyrir 3 bíla með snjóbræðslu.
Gólfefni íbúðarinnar er parket nema á þvottahúsi, forstofu og baðherbergi þar sem eru flísar.
Nánari upplýsingar gefur
Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is