Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Vista
sumarhús

Hlíð 39

276 Mosfellsbær

29.900.000 kr.

715.311 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2086371

Fasteignamat

20.750.000 kr.

Brunabótamat

17.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1978
svg
41,8 m²
svg
0 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði

Lýsing

Miklaborg kynnir:


Fallegur 41,8fm sumarbústaður í Eilífsdal í Kjós

Einstaklega vel staðsettur bústaður umvafinn fallegum gróðri í Eilífsdal í Kjós. Húsið er 41,8 fm, byggingaár 1978. Viðargólf eru í húsinu og panelklæddir veggir. Húsið stendur ofan götu og er á 5000fm leigulóð. Góður pallur umlykur bústaðinn og þar stendur lítill kofi sem er notaður sem áhaldageymsla. Einnig er geymslurými undir bústaðnum. Nýlega var rafmagnsheimtaug lögð að bústaðnum og eru komnir nokkrir vinnutenglar, að öðruleiti er raflögn ófrágengin. Fallegt og rólegt fjölskylduumhverfi, bústaðurinn stendur í hlíð á grónum stað með fallegu útsýni. Fjölbreytt aðstaða er til útivistar í næsta nágrenni eins og göngur inn Eilífsdalinn og að Meðalfellsvatni, fjallgöngur, klettaklifur í Valshamri og ísklifur inni í Eilífsdalnum. Berjaland er efst í landinu og bílastæði neðst. Eignin skiptist í forstofu, samliggjandi eldhús og stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu/fataskáp. Anddyri, geymslu/fataskáp og fatahengi. Eldhús er með innréttingu og gashelluborði, vask, ísskáp og örbylgjuofni.


Stofan/borðstofan er björt og með kamínu. Útgengt úr stofu á sólpall. Svefnherbergin eru tvö, annað með tvíbreiðu rúmi og einsmanns koju, hitt með rúmi og einsmanns koju fyrir ofan. Baðherbergi er með litlum vaski og wc. Ekki sturta. Árgjald í sumarhúsafélagið er uþ..b kr. 50.000 og greiðist í tvennu lagi. Valshamar, sumarhúsafélagið, á báðar vatnsveiturnar, vegina og girðingar umhverfis allt svæðið og leiksvæði með leiktækjum. Verið er að endurnýja leiksvæðið. Gámasvæði með sorpflokkun fyrir framan rafmagnshlið. Um verslunarmannahelgina er fjölskylduskemmtun á vegum félagsins og brenna um kvöldið.

Hitaveita er á svæðinu og hægt að tengjast með samningi við Kjósarveitur. Rafmagnshlið er inn á svæðið. Stutt keyrsla úr bænum, ca 40 mínútur.Húsið selst með öllu innbúi.

Ítrekuð er skoðunarskylda kaupanda samkvæmt lögum um fasteignakaup nr. 40 2002



Allar frekari upplýsingar


Árni Gunnar HaraldssonAðstoðarmaður Fasteignasala

arnig@miklaborg.is 8614161


Jason GuðmundssonLöggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, lögg. leigumiðlari

8614161


Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. mar. 2025
20.750.000 kr.
24.000.000 kr.
10101 m²
2.376 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík