Opið hús: Melabraut 13, 170 Seltjarnarnes, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 10. júní 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands alls 90,9 fm þar af er íbúðin 85,3 fm og geymsla í sameign 5,6 fm.
Nánari lýsing á eign:
Forstofa: Gengið er inn í forstofu, þaðan er gengið inn að einu svefnherbergi og áfram inn íbúðina. Parket á gólfi.
Eldhús og stofa: Snyrtilegt L-laga eldhús með fallegri hvítri innréttingu og dökkri borðplötu ásamt tengi fyrir uppþvottavél. Stofan er samliggjandi með eldhúsi og er rýmið mjög bjart. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtilegt með vask, sturtuklefa og salerni ásamt glugga. Flísalagt í hólf og gólf.
Svefnherbergi: Eru þrjú talsins, öll virkilega rúmgóð, gengið er út á sérefnotareit úr einu herbergjanna. Parket á gólfi.
Þvottahús: Er staðsett inn af forstofu/gangi og er sameiginlegt með hinum íbúðum hússins.
Sameign: Sér geymsla er staðsett inn af þvottahúsi.
Um er að ræða frábæra eign með góðu skipulagi á besta stað á Seltjarnarnesinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla og skóla.
Allar nánari upplýsingar um eignina veita:
Kristján Baldursson hdl og löggiltur fasteignasali í síma 867-3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is og Viktoría R. Larsen, Löggiltur fasteignasali í síma 6185741 eða á netfanginu viktoria@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.