Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Halla Unnur Helgadóttir
Elín Urður Hrafnberg
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Herdís Valb. Hölludóttir
Ingibjörg Reynisdóttir
Ellert Bragi Sigurþórsson
Daði Runólfsson
Vista
svg

58

svg

46  Skoðendur

svg

Skráð  6. jún. 2025

fjölbýlishús

Austurhólar 8

800 Selfoss

63.900.000 kr.

629.557 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2521060

Fasteignamat

62.350.000 kr.

Brunabótamat

56.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
101,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Gimli fasteignasala og Kristján Gíslason kynna:  Austurhólar 8, 800 Selfoss, íbúð 06-01, sem er fjögurra herberga endaíbúð á efstu hæð með vestur svölum og glæsilegu útsýni. Húsið er 6 hæða og byggt 2022. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi, þvottahús/geymsla er innan íbúðar, baðherbergið er með walk-in sturtu, forstofa með skáp og fatahengi og þá mynda eldhús og stofa fallegt opið rými. Inngangur í íbúðina er af yfirbyggðum svölum á austurhlið hússins. Húsið er annað af tveimur hæstu húsunum á Selfossi og þess vegna er mikið útsýni út um alla glugga íbúðarinnar.

Eignin Austurhólar 8 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 252-1060, birt stærð 101.5 fm. Nánar tiltekið eign merkt 06-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Kristján Gíslason  í síma 691-4252, eða kristjan@gimli.is

NÁNARI LÝSING:
Gengið er inn í íbúðina frá yfirbyggðum svölum á austur hlið hússins og komið inn í rúmgott anddyri með hvítum fataskáp og fatahengi. Eldhús og stofa mynda fallegt opið rými með miklu útsýni og útgengi út á vestur svalir. Í eldhúsi er L-laga eldhúsinnréttingu frá ítalska framleiðandanum Milton með ljúflokum á öllum skápum og skúffum. Efri skápar eru með dökkri viðaráferð og innbyggð ledlýsing er undir efri skápum. Borðplötur eru með slitsterku yfirborði, í brúnleitum dökkum lit. Neðri skápar eru í hvítum lit. Helluborð, háfur/vifta, bakarofn, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur af gerðinni Electrolus. Svefnherbergi-1 er mjög rúmgott með hvítum fataskápum. Svefnherbergi-2 er með hvítum fataskáp en svefnherbergi-3 er minna og ekki með skáp. Baðherbergið er með flísum á gólfi og í kringum walk-in sturtu, sem er með glerþili. Hvít innréttingi undir vaski og speglaskápur fyrir ofan. Upphengt salerni og handklæðaofn. Þvottahúsm/geymsla er með flísum á gólfi og hillum/skúffum. 
Svalirnar snúa í vestur og eru 7,2 fm, með svalahandriði úr áli og klætt með gleri. Vagna- og hjólageymsla er í sameign á jarðhæð. 
Fllísar eru á gólfum baðherbergis og þvottahúss en á öllum öðrum gólfum er vínilparket. Allar innréttingar eru frá Milton.

Húsið Austurhólar er 6 hæða staðsteypt fjölbýli með 35 íbúðum byggt 2022. Það er einangrað að utan og veggir eru klæddir að utan með sléttu og báruðu áli í bland en viðarklæðning út bandsagaðri furu er á svölum íbúða. Allir gluggar eru ál/tré, hvítmálaðir að innan en álklæddir að utan.
Lóðin. Bílastæði eru malbikuð og búið er að setja upp tvær rafhleðslustöðvar. Hiti er undir stéttum að húsi og sorpskýli er við bílastæðið.
Stutt er í alla þjónustu og m.a. er nýr leikskóli við hlið hússins.

Nánari upplýsingar veitir: Kristján Gíslason Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 691-4252, tölvupóstur kristjan@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.

Gimli gerir betur...

Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. jún. 2022
18.600.000 kr.
62.000.000 kr.
101.5 m²
610.837 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone