Opið hús: Miðstræti 8, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 12. júní 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð samkvæmt fasteignayfirliti HMS 35,8 fm.
Nánari lýsing:
Forstofuhol með góðum skáp og parket á gólfi.
Stofa/borðstofa/eldhús í góðu alrými. Parket á gólfi. Fallegt útsýni.
Svefnloft yfir hluta alrýmis með parket á gólfi. Ekki inn í fermetratölu eignarinnar og er ca. 10 fm gólfflötur.
Svefnherbergi með parket á gólfi. Risloft yfir svefnherbergi sem ekki er inn í fermetratölu íbúðar með stærri gólfflöt en herbergið.
Baðherbergi með sturtu, tengi fyrir þvottavél og flísar á gólfi og við sturtu.
Falleg eign sem hentar vel sem fyrstu kaup. Göngufæri við miðbæ Reykjavíkur, Hljómskálagarðinn, HÍ og stutt í alla þjónustu.
Nánar upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.