Lýsing
Húsaskjól og Pétur Ísfeld, löggiltur fasteignasali, kynna til sölu: Vel skipulögða tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í Torfufelli 27, 111 Reykjavík, með fasteignanúmer 2052916. Birt stærð eignar er skráð 57 fm, þar af íbúðarrými 51,2 fm, geymsla 5,8 fm, og sérafnotareiturmeð afgirtum palli út frá stofu. Íbúðin skiptist í andyri, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, auk palls sem er afgirtur.
OPIÐ HÚS VERÐUR Í TORFUFELLI 27, ÍBÚÐ 101, MIÐVIKUDAGINN 18. JÚNÍ KL. 18:00-18:30.
Upplýsingar veitir: Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali í síma 862-5270 eða petur@husaskjol.is
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR TORFUFELL 27, ÍBÚÐ 101.
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt verðmat á þinni eign.
Ath. Íbúðin er tóm í sýningu og laus til afhendingar við kaupsamning.
Nánari lýsing
Andyri: Gengið inn í andyri af teppalögðum stigagangi, fataskápur er á hægri hönd og spegill á vinstri. Góð yfirsýn er yfir alla íbúðina. Á gólfi er fallegt ljóst harðparket.
Stofa og borðstofa: er með borðstofu og stofu, ljósu harðparket á gólfi og stórir nánast gólfsíðir gluggar eftir endilöngum útvegg með hurð út á pall og opnanlegu fagi gera rýmið bjart og notalegt. Þetta er rými sem býður upp á mikla möguleika.
Eldhús: er með hvítri innréttingu eftir öllum hægri vegg með ljósgráum flísum á milli efri og neðri skápa sem eru með góðu skipulagi, miklu vinnuplássi og skápapláss. Í innréttingu er pláss fyrir uppþvottavél, eldavél og ísskáp og við endann hjá glugga er pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Stór gólfsíður gluggi er í eldhúsi með opnanlegu fagi og á gólfi er ljósbrúnn dúkur.
Hjónaherbergi: er bjart og rúmgott með stórum gólfsíðum glugga með opnanlegu fagi, stórum fataskáp og á gólfi er ljóst harðparket. Pláss er fyrir tvíbreytt rúm og náttborð.
Baðherbergi: er nýlega tekið í gegn með gráar flísar á gólfi og hvítar flísar á veggjum. Góð hvít innrétting, með ágætis skápalássi er undir vaski og góður speglaskápur er yfir vaski.
Pallur: er rúmgóður, afgirtur og snýr í vestur.
Geymsla: er staðsett á jarðhæð við hlið íbúðar.
Sameign: er með sameiginlegu þvottahúsi og reiðhjólageymslu.
Upplýsingar veitir: Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali í síma 862-5270 eða petur@husaskjol.is
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði