Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Halldóra Kristín Ágústsdóttir
Steindór Guðmundsson
Vista
svg

409

svg

339  Skoðendur

svg

Skráð  11. jún. 2025

fjölbýlishús

Breiðvangur 13

220 Hafnarfjörður

81.900.000 kr.

643.868 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2073887

Fasteignamat

65.750.000 kr.

Brunabótamat

63.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1976
svg
127,2 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Breiðvangur 13 í norðurbæ Hafnarfjarðar. Mjög góð og mikið endurnýjuð fjögurra herbergja endaíbúð á fyrstu hæð með möguleika á fjórða svefnherberginu. Íbúðin er 112,2 fm. Stór sérgeymsla í kjallara er 15 fm og eignin því alls 127 fm. Einnig fylgir önnur minni sérgeymsla sem er ekki skráð skv eignaskiptasamningi. Ca 6 fm.

Húsið hefur farið í gegnum miklar endurbætur á síðustu árum og má m.a. nefna nýja glugga, svalahurðir og þakjárn og þrjár hliðar hússins hafa verið teknar í gegn. Eftir er að taka suðurhliðina sem snýr að bílastæðunum. Nánari upplýsingar um framkvæmdir síðustu ára hjá fasteignasala. 

Íbúðin sjálf hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum í áföngum. Innihurðar hafa verið endurnýjaðar, gólfefni, baðherbergi, fataskápar og eldhús. Einnig ofnar og rofar og tenglar.

Nánari lýsing íbúðar. Opin forstofa með nýlegum fataskáp. Borðstofa og rúmgóð stofa í opnu og björtu rými, áður var fjórða herbergið þar sem borðstofa er í dag. 
Útgengt úr stofu á suðursvalir. Eldhús með fallegri nýlegri innréttingu. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgir. Spanhelluborð og tveir ofnar. Þvottahús inn af eldhúsi. Herbergjagangur með glugga í enda. Þrjú svefnherbergi. Nýir fataskápar í hjónaherbergi og hurð út á svalir. Baðherbergi flísalagt, innrétting, upphengt salerni og góð sturta.
Virkilega notaleg íbúð í góðu ástandi.

Hjóla og vagnageymsla í sameign.

Rúmgott bílaplan og merkt bílastæði fyrir hverja íbúð. Sameiginlegar hleðslustöðvar á bílaplani.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða snorri@husfasteign.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

img
Snorri Sigurfinnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
HÚS fasteignasala
Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi
img

Snorri Sigurfinnsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi

Snorri Sigurfinnsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi