Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Oddagata 3 efri hæð

600 Akureyri

51.900.000 kr.

583.802 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2149632

Fasteignamat

43.300.000 kr.

Brunabótamat

41.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1927
svg
88,9 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Oddagata 3 - Mikið endurnýjuð og björt 3ja herbergja íbúð á annarri hæð með sérinngangi - Stærð 88,9 m².
Mjög vel staðsett eign nálægt miðbænum, tilvalin til útleigu. 


Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:
Forstofa, eldhús, stofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla.

Forstofa, er á jarðhæð, þar er opið fatahengi og flísar á gólfi, gengið er upp teppalagðan stiga á efri hæð. 
Eldhús, er með nýlegri ljósri innréttingu, spanhelluborði og innbyggðri uppþvottavél. Stæði er fyrir ísskáp við enda innréttingar. Harðparket er á gólfi.
Stofa er nokkuð rúmgóð og afar björt með gluggum til þriggja átta. Útengt er á timbursvalir er snúa til suðausturs. Harðparket er á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö og eru þau bæði með fataskápum og harðparketi á gólfi. 
Baðherbergi er með vaski, wc, handklæðaofni og sturtuklefa, sturtuklefi er klæddur að innan með Fibo Tresbo þiljum. Opnanlegur þakgluggi er á baðherbergi. Flísar á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél.
Þvottahús er í kjallara og er það sameiginlegt með efri hæð, þar er tengi fyrir þvottavél og stæði fyrir þurrkara. Einnig er tengi fyrir þvottavél á baðherbergi. 
Geymsla, 13,3 m², er í kjallara og er hún inn af þvottahúsi, þar er harðparket á gólfi og hillur.

Annað:
- Eignin hefur verið mikið endurnýjuð í síðustu fimm árum, svosem innrétting og eldhústæki, baðherbergi og gólfefni íbúðar. 
- Skemmtilega staðsett eign nálægt miðbænum.
- Gott útsýni er úr íbúð.
- Búið er að setja upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.
- Sérinngangur.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. sep. 2020
26.800.000 kr.
27.000.000 kr.
88.9 m²
303.712 kr.
18. sep. 2007
11.350.000 kr.
12.300.000 kr.
88.9 m²
138.358 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone