OPIÐ HÚS AÐ NEÐSTALEITI 8, 103 REYKJAVÍK, SUNNUDAGINN 22. JÚNÍ FRÁ KL. 12:15 - 13:00. ALLIR VELKOMNIR!!
Lýsing
Virkilega falleg 4ra herbergja íbúð á 3. hæð ásamt stæði í bílageymslu. Árið 2023 var eldhúsið allt endurnýjað - þrjú rúmgóð svefnherberbergi - þvottahús innan íbúðar - tvennar svalir. Mjög fallegt útsýni er frá íbúðinni. Birt stærð skv. HMS: Íbúðin sjálf er 121,7 m2 merkt 03-01, stæði í bílageymslu er 28,6 merkt 01-08, samtals 150.3 m2 að stærð. Þess ber að geta að geymslan í sameigninni sem tilheyrir íbúðinni er ekki skráð í birta fermetrastærð. Húsið var múrviðgert og málað að utan sumarið 2021 ásamt því að svalirnar og handriðin voru endurnýjuð. Allir veggir í íbúðinni voru málaðir að innan sumarið 2021. Fasteignamat næsta árs 95.600.000 kr.
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu / hol, stór fataskápur. Á vinstri hönd við inngang er svefnherbergi með fataskáp. Tvö önnur svefnherbergi og er annað þeirra með fataskáp og með útgangi út á norðursvalir. Baðherbergið er flísalagt með sturtu og baðkari, góð innrétting með tveimur vöskum. Mjög björt stofa og borðstofa með útgangi út á mjög rúmgóðar suðursvalir með fallegu útsýni. Fallegt nýlega endurnýjað eldhús (árið 2023) með fallegri innréttingu frá INNlifun, flísar á milli efri og neðri skápa, ásamt nýlegum tækjum (bakaraofn, span helluborð og vifta). Borðkrókur með góðum glugga þar sem hægt er að njóta útsýnisins. Innaf eldhúsinu er þvottahús / búr með hillum og skolvaski. Eigninni fylgir sérgeymsla í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Einnig er í sameiginni þrjár mjög rúmgóðar sameiginlegar geymslur ásamt sameiginlegu þurrkherbergi. Mjög rúmgott, bjart og aðgengilegt stigahús. Falleg sameiginleg lóð með velhirtum gróðri og hellulögnum. Hiti í göngustígum að bílastæðum. Gólfefni íbúðar: dúkur á svefnherbergjum ásamt flísum á baðherbergi og eldhúsi, gegnheilt Jatobaparket.
VIRKILEGA FALLEG, VEL SKIPULÖGÐ ÍBÚÐ MEÐ FALLEGU ÚTSÝNI Á EFTIRSÓTTUM STAÐ.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
Umsagnir viðskiptavina HÉR
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram
Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat