Opið hús: Klyfjasel 2, 109 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 24. júní 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Sérinngangur í báðar íbúðir. Stærri íbúðin sem er 3ja herbergja er um 85 fm og minni íbúðin sem er stúdíóíbúð er um 30 fm eða samtals 115,6 fm. Íbúðirnar eru vel útbúnar og hentugar til útleigu.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð samkvæmt fasteignayfirliti 115,6 fm.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 71.950.000 kr.
Nánari ýsing:
3ja herbergja íbúð:
Forstofa með flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa rúmgóð með parket á gólfi. Opið yfir í eldhús.
Eldhús er bjart með dökkri viðarinnréttingu, keramik helluborði, ofn á vegg og stórum glugga.
Svefnherbergi eru tvö með fataskápum og parket á gólfi.
Baðherbergi með dökkri viðarinnréttingu, flísalagt í hólf og gólf með hvítum tækjum, baðkari með sturtu og afstúkaðri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innan íbúðar.
Stúdíóíbúð:
Forstofa með flísar á gólfi.
Alrými er rúmgott með eldhús í öðrum enda rýmis. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél.
Sameign: Vatns og rafmagnsinntök innaf forstofu stúdíóíbúðar. Innbyggð ruslageymsla og dekkjageymsla undir útistiga upp á efri sérhæðina.
Lóð er tyrfð og viðarpallur er fyrir framan íbúðina og lítill viðarpallur í norðvestur horni lóðar, hugsaður fyrir stúdíóíbúð.
Stutt í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla.
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.