Lýsing
Geymsluloft sem er búið að endurgera sem herbergi 17 fm með þakglugga sem er ekki inní fermetra tölu eignarinnr.
Bílastæði í lokuðum bílakjallara með raflögnum fyrir hleðslustöð. Búið er að endurnýja svalir frá því myndir voru teknar.
Eign sem er þess virði að skoða.
Eignin er skrá samkvæmt Þjóðskrá Íslands 137 fm þar af er bílastæði og geymslan 30 fm, 17 fm rými undir súð er ekki með í fermetratölu eignarinnar.
Nánar um eignina :
Forstofa er með bæði fataskáp og skóskáp, flísar og hiti er á gólfi.
Gestabaðherbergi er innan við forstofuna, flísar og hiti á gólfi.
Eldhús er með eldri hvítri innréttingu og góðu plássi fyrir eldhúsborð, nýlegt parket á gólfi.
Stofa og borðstoða eru í sameiginlegu rými með eldhúsinu, útgengt er á vestur svalir úr stofu, nýlegt parket á gólfi.
Viðarstigi er milli hæða, nýmálaður. Komið er upp í hol með nýju parketi á gólfi
og góðu skápaplássi fyrir endanum.
Hjónaherbergi er með skáp og parket á gólfi
Barnaherbergi er undir súð með opnanlegum þakglugga og parket á gólfi
Barnaherbergi er undir súð með opnanlegum þakgluggum og parket á gólfi.
Baðherbergi er með opna sturtu með handklæðaofni, innréttingu og er þvottaaðstaða jafnframt þar ásamt skápaplássi undir súð. Flísar og rafmagns hiti í gólfi.
Geymsluloftið hefur verið endurnýjað sem herbergi. Gengið er upp málaðan viðarstigann og upp á 17 fm rými undir súð þar sem lofthæð er hæst 185 cm, loftið telst ekki með inn í heildarfermetratölu íbúðar. Loftið er flotað, veggir eru klæddir og er þar þakgluggi með góðu útsýni.
Svalir eru í vestur og eru nýjar 2024.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.
Sér stæði í lokaðri bílageymslu og komin er raflagnir fyrir rafhleðslustöð ásamt þvottaaðstöðu.
Óskráð sérgeymsla er í sameign bílageymslunnar.
Eigin er í útleigu núna og losnar í sumar 2025.
Hús að utan:
2024 - Húsið sprunguviðgert og málað að utan
2023 - Þak menjað og málað
Stutt í alla helstu verslun og þjónustu auk þess sem stutt er í útivistarsvæði í Elliðaárdal, fallegar göngu- og hjólaleiðir, sundlaug og líkamsrækt.
Allar nánari upplýsingar veitir Inga Reynis í síma 820-1903 eða á tölvupóstinum inga@gimli.is
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...