Opið hús að Laufrima 5 í Reykjavík, íbúð 101, mánudaginn 30. júní 2025 milli kl. 16:30 og 17:00. Sérinngangur í íbúð á vinstri hlið hússins. Verið velkomin.
Lýsing
Falleg og björt 88,7 fm 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi ásamt afgirti verönd sem snýr til suðausturs við Laufrima 5, 112 Reykjavík. Íbúðin nær alveg í gegnum húsið sem gerir eignina mjög bjarta. Samkvæmt þjóðskrá er íbúðin skráð 88,7 fm. Sérgeymsla innan íbúðar með opnanlegum glugga. Eignin hefur fengið mikið og gott viðhald á síðustu árum.
Nánari upplýsingar veitir:
Freyja Rúnarsdóttir lögg. fast. s. 694-4112 eða freyja@landmark.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur, hitalögn í gólfi.
Miðrými: Parket á gólfi.
Stofa / Borðstofa: Rúmgóð og björt með parket á gólfi. Útgengt á sérverönd sem er afgirt.
Eldhús: Falleg hvít innrétting með eyju sem hægt er að sitja við. Parket á gólfi. Tengi fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergi: 2 rúmgóð herbergi með parket á gólfi, fataskápar í báðum.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtuaðstöðu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Handklæðaofn og hitalögn í gólfi.
Geymsla innan íbúðar sem notuð er í dag sem geymsla og vinnuherbergi, opnanlegur gluggi.
Framkvæmdir á húsinu að utan 2022:
Þak yfirfarið og málað.
Skipt um glugga og gler þar sem þess þurfti.
Svalir flotaðar og málaðar.
Kuldabrú löguð í nokkrum íbúðum.
Verksýn verfræðistofa gerði úttekt á húsinu og hafði umsjón með framkvæmdinni.
Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnarsdóttir lögg. fast. s. 694-4112 eða freyja@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat