Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1984
svg
195,9 m²
svg
6 herb.
svg
1 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
Opið hús: 3. júlí 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Grashagi 3, 800 Selfoss. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 3. júlí 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905 og Valhöll fasteignasala kynna í einkasölu. Grashaga 3a 800 Selfossi. Frábært fjölskylduhús á einni hæð, 6 herbergja með bílskúr, nýlegu útisvæði (pallur, 2 verandir, yfirbyggðri grill/setuaðstöðu) og stórri gróinni lóð.

Húsið er steníklætt timburhús byggt 1984 og er vel staðsett í grónu hverfi Selfoss. Hellulagt bílastæði, verönd og gangstétt að húsi. 

Mjög snyrtilegt og vel viðhaldið 5 herbergja einbýlishús á einni hæð auk innangengs bílskúrs, innarlega í botnlanga á vinsælum stað og í göngufæri við nýja miðbæ Selfoss. 
Í bílskúr er möguleiki á að útbúa auka íbúðarrými þ.s. þar eru nú þegar til staðar sér inngangar, gluggar ofl. !
Fasteignamat 2025 er 87.750.000.- en verður 96.950.000 f. árið 2026

- 2022 Endurnýjuð; Gólfefni. Eldhúsinnrétting og eldhústæki
- 2022 Neysluvatnslagnir endurnýjaðar

2021 Járn á þaki endurnýjað að hluta (sem þurfti)
- Eignin er skráð skv. HMS 195,9 fm. Íbúð 157,9 fm og bílskúr 38 fm.
- Einbýlishús á einni hæð - bygg.ár 1984 - 2 eigendur
- Húsið er timburhús klætt með stení.
- Gott skipulag - 4 svefnherbergi + herbergi / möguleiki á íbúðareiningu í garðstofu

- 2021 Byggður Sólpallur og grill-og setuaðstaða framan við hús
- 2021 Byggður Sólpallur, heitur pottur og geymsluskúr baka til

- Hellulögð innkeyrsla með snjóbræðslu. Timbur verandir.

Húsið skiptist í: Forstofu, forstofuherbergi, hol, eldhús/stofu/borðstofa, gang, baðherbergi, 3 svefnherbergi, þvottahús og geymslu, garðstofu og bílskúr.
Ath. að frá upprunanlegri teikningu þá hefur aðgengi að garðstofunni verið breytt og er nú ekki innangengt úr stofu. Hér er möguleiki á 5. herberginu eða lítilli íbúð án þess að missa bílskúrinn.
Nánari lýsing; Gengið er inn í húsið á gafli þess.
Forstofa: Flísalögð.
Forstofuherbergi I: Parketlagt, rúmgott.
Hol: Parketlagt. Opnast inn í eldhús, stofu og svefnherbergisgang.
Eldhús/stofa/borðstofa: Parketlagt, í sameiginlegu opnu rými með uppteknu lofti, fallegri gluggasetningu og tvöfaldri opnun út á nýlegan pall. Eldhúsið er með hvítri innréttingu á heilum vegg og eyju. Helluborð, ofn og vifta. Stofa: Rúmgóð og björt, með uppteknu lofti gluggum á 2 vegu. Hægt er að opna aftur hurðargat þaðan í garðstofu. 
Svefnherbergisgangur:  Af holi, Parketlagður.  Af honum eru; baðherbergið, svefnherbergin 2 og þvottahúsið. Öll herbergin snúa inn í garðinn.
Svefnherbergi II: Parketlagt, rúmgott með skáp.
Svefnherbergi III: Parketlagt, rúmgott með skápum.
Svefnherbergi IV: Parketlagt, möguleiki er að hafa það sem hluta af hjónaherbergi sem fataherbergi. 
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Rúmgott með upphengdu salerni, sturtuklefa, vaskinnréttingu og baðkari. Gluggi er á baði.
Þvottahús: Tengir svefnherbergisgang, geymlu og bílskúrinn. Flísalagt með glugga. Af því er innangengt í garðstofuna svo og áfram í geymsluna.
Geymsla:  Af þvottahúsi. Flísalögð. Þaðan er gengið út í baklóðina þar sem er nýlegur pallur með skjólgirðingu, potti og geymsluskúr.
Bílskúr: Er innangengur úr þvotta húsi og skráður 25,9 fm. Málað gólf, gluggar á austurhlið og rafdrifin innkeyrsluhurð. Niðurtekið geymsluloft að hluta. Heitt og kalt vatn. Gluggi snýr út í garð.
Garðstofa: Er flísalögð með uppteknu lofti og 2 þakgluggum auk gluggasetningu á framhlið hússins. Góðir möguleikar eru á að útbúa íbúðarrými þar sem stutt er í vötn ofl.
Lóðin: Er stór, skráð 952,4 fm. Hornlóð í lokuðum botnlanga. Gróin með miklum nýtingarmöguleikum. Útgengi úr húsi á palla beggja vegna hússins og geymsluskúr.
Planið er hellulagt með snjóbræðslukerfi.
Samantekt: Hér er um að ræða einstaklega rúmgott, vel viðhaldið og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð innarlega í botnlanga á besta stað í grónu hverfi á Selfossi. Lóðin er einstaklega vel nýtt til útiveru; 2 pallar, yfirbyggð grill-og setuaðstaða, heitur pottur. Frábært fjölskyldueign í alla staði á fallegum stað á Selfossi þar sem stutt er í náttúrufegurð, gönguleiðir, sundlaug og örstutt í öll skólastig, verslun sem og þjónustu nýja miðbæjarins.

Allar nánari upplýsingar veitir  Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. VALHÖLL fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati.
Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. jún. 2021
52.350.000 kr.
55.900.000 kr.
195.9 m²
285.350 kr.
25. okt. 2006
23.780.000 kr.
26.400.000 kr.
195.9 m²
134.763 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone