ÍBÚÐ 301 (Rakel & Hilmar á bjöllu). Sveinn Eyland lögg.fasteignasali á staðnum.
Lýsing
Um er að ræða fjölskylduvæna og vel skipulagða sjö herbergja 178.5 fm íbúð á tveim hæðum við Veghús 25 í Grafarvogi, stórglæsilegt útsýni er úr íbúðinni til norð-vesturs.
Rúmgóðar hellulagðar suður-svalir, gólfsíðir gluggar í stofu sem að gera íbúð mjög skemmtilega.
Stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttar, útivistarsvæði og stofnbrautir.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 153.4 fm merkt 03-03-01 og bílskúr 25.1 fm merktur 03-01-04, samtals 178.5 m2 að stærð.
Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is
Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 7700 309 eða th@landmark.is
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.
Eignin skiptist í:
Forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi, geymslu á efri hæð og innbyggðan bílskúr.
Rúmgóðar suður-svalir.
Nánari lýsing á eign:
Á aðlhæð er komið inn í aflokaða forstofu og innaf forstofu er svefnherbergi með fataskáp.
Úr forstofunni er komið inn í alrými íbúðar og er þar opin og björt stofa og borðstofa sem að renna saman í eitt rými, gólfsíðir gluggar til suðurs og útgengt úr stofu á rúmgóðar suður-svalir.
Eldhús er opið inn í stofu og er nett eyja sem að skilur af stofurými og eldhús, snyrtileg hvít innrétting í eldhúsi með efri og neðri skápum og er gott skápapláss í eldhúsi, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu og eins er pláss fyrir tvöfaldan ísskáp í innréttingu.
Rúmgott hjónaherbergi er innaf stofurými með fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfum, baðkar með sturtugleri, ágætis innrétting undir vask en það eru tveir vaskar í innréttingu.
Úr stofurými er stigi uppá efri hæð þar sem að komið er uppá pall.
Þrjú góð svefnherbergi eru á efri hæð með góðri lofthæð og þakgluggum, innaf einu herbergi er góð geymsla sem að gæti nýst sem fataherbergi.
Baðherbergi á efri hæð er nokkuð rúmgott með sturtuklefa, innrétting undir vask, tengi er fyrir þvottavél og þurrkara, þakgluggi er á baðherbergi.
Bílskúr er á jarðhæð og er hann staðsettur næst inngangi í húseign.
Gólfefni eignar: Harðparket og flísar á gólfum eignar.
Búið er að endurnýja glugga og gler í íbúð á suður og norður hlið.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat