Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 38,2fm. og er lóðn skráð 4.945fm.
Nánar um eignina:
Forstofa með fatahengi.
Tvö svefnherbergi.
Baðherbergi með sturtuklefa, glugga og snyrtilegri innrétting.
Eldhús með viðarinnréttingu, eldhúskrókur með fallegu útsýni. Parket á gólfi.
Stofan er opin við eldhús með góðri lofthæð, arinn og parketi á gólfi. Útgengt er út á sólpall úr stofunni.
Geymsla/þvottahús með glugga er sambyggt húsinu með sérinngangi og er hægt að nýta margvíslega.
Lóðin er í góðri rækt og má segja að lóðin sé fullfrágengin.
Eignin stendur á kjarrivaxinni eignarlóð sem er á svæði sem er lokað með rafmagnshliði (símahlið).
Ársgjald er ca. kr 20.000 á ári sem er nýtt til framkvæmda á svæðinu.
Þetta er afar sjarmerandi eign sem vert er að skoða á frábærum stað í Eyrarskógi í um 40 mínútna akstursfjarlægð frá borginni.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.