Sveinn Eyland lögg.fasteignasali á staðnum.
Lýsing
Um er að ræða vel skipulagða og rúmgóða 4-5 herbergja 187.8 fm neðri hæð í fjórbýlishúsi við Gulaþing 36 í Þingahverfinu í Kópavogi.
Sérinngangur er í íbúð sem að er með ca. 50 fm afgirtri verönd til suðurs og grænt svæði þar á bakvið og svo eru rúmgóðar norður-svalir sem að heimilt væri að loka.
Stórglæsilegt útsýni er úr íbúð yfir Elliðavatn, átt að Esjunni, Skálafell og víðar.
Húseignin er öll klædd að utan og er um nánast viðhaldsfrítt hús að ræða, gott bílaplan fram við húseign.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð með geymslu er 145.6 fm merkt 01-02-05 og bílskúr er 42.2 fm merkt 01-01-09 alls 187.8 fm.
Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.
Eignin skiptist í:
Aflokaða forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, herbergjagang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, innbyggðan bílskúr og rúmgóða geymslu þar innaf.
Afgirt suður-verönd ca. 50 fm.
Nánari lýsing á eign:
Komið er inn í forstofu úr opnu stigahúsi (sérinngangur) og eru innbyggðir fataskápar í forstofu.
Á vinstri hönd þegar komið er inn úr forstofu er herbergjagangur og á hægri hönd er stofa, borðstofa og eldhús.
Stofa, borðstofa og eldhús er í opnu og björtu rými og er glæsilegt útsýni úr stofu yfir Elliðavatn, átt að Esjunni, Skálafell og víðar, útgengi úr stofu á norður-svalir sem að heimilt er að loka.
Eldhús er með snyrtilegri eldhúsinnréttingu með eldunareyju, efri og neðri skápar með góðu skápaplássi, góðar hirslur í eldhúseyju, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Svefnherbergin eru þrjú og eru öll mjög rúmgóð og með fataskápum, gluggar til suðurs út á verönd í herbergjum, útgengi úr hjónaherbergi út á afgirta skjólgóða suður-verönd og til suðurs bakvið verönd er grænt svæði.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað, flísar á gólfi og veggjum, baðkar, Walk-in sturtuklefi með glerskilrúmi, vegghengt salerni, góð innrétting undir vask með skúffum, handklæðaofn á vegg, gólfhiti.
Þvottaherbergi er við hlið baðherbergis og er rúmgott með innréttingu undir þvottavél og þurrkara, skolvaskur í innréttingu
Innbyggður bílskúr er á jarðhæð undir íbúð og er hann mjög rúmgóður með góðri lofthæð, rafdrifin bílskúrshurð.
Sérgeymsla er innaf bílskúr. Sameiginleg hjóla/vagnageymsla á jarðhæð.
Gólfefni: Parket og flísar á gólfum eignar.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat