Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Vel skipulögð 109,3 m2 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð með afgirtri timburverönd í suðurátt og stæði í bílageymslu við Gvendargeisla 24. Eignin er skráð 109,3 m2, en þar af íbúð 100,1 m2 og geymsla 9,2 m2. eru svalir með svalalokun um 11,2 m2 sem ekki eru í fermetratölu eignarinnar. Þannig að eignin er um 120 m2 í heildina.
Gott skipulag og fallegar sérsmíðaðar innréttingar. Fallegir viðalistar með hljóðeinangrun og sérsmiðuð lýsing er í eigninni. Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi, þvottahús, 2 svefnherbergi, eldhús, stofu borðstofu og svalir/sólstofu. Sérgeymsla í sameign. Frábær staðsetning þar sem stutt í leik- og grunnskóla. Góðir göngu- og hjólastígar eru á svæðinu.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa/borðstofa er í opnu rými með flísum á gólfi, veggur í stofu er klæddur með fallegum marmaraflísum.. Úr stofu er gengið út á lokaðar svalir/sólstofu með gólfhita og flísum á gólfi sem hefur verið nýtt sem herbergi, þaðan er síðan gengið út á skjólgóða timburverönd.
Eldhús er með fallegri sérsmíðaðri innréttingu og flísum á gólfi. Í innréttingu eru tveir ofnar, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, vaskur og helluborð. Steinn á borðum backsplash úr Marmara svörtum flísum á milli efri skápa og borðplötu.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og stórum fataskáp.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataksáp.
Baðherbergi með glæsilegum marmaraflísum á veggjum og parket flísum á gólfi. Falleg sérsmíðuð innrétting með vask úr steini, 'walk in' sturta, handklæðaofn og vegghengt salerni.
Þvottahús er innan íbúðar og með flísum á gólfi.
Geymsla er í sameign. Er skráð 9,2 m2.
Eigninn fylgir sérmerkt stæði í bílageymslu ásamt hlutdeild að sameignlegri hjóla- og vagnageymslu
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 77.050.000,-
Verð kr. 88.500.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.