Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
svg

350

svg

305  Skoðendur

svg

Skráð  11. júl. 2025

fjölbýlishús

Berjarimi 2

112 Reykjavík

83.900.000 kr.

520.471 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2040207

Fasteignamat

76.000.000 kr.

Brunabótamat

63.870.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1992
svg
161,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
Opið hús: 16. júlí 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Berjarimi 2, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 16. júlí 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Rúmgóð og björt 4ra herbergja íbúð á 2. hæð auk tveggja bílastæða í lokaðri bílageymslu í góðu fjölbýlishúsi í Rimahverfinu í Grafarvogi. Annað bílastæðið er lokað með bílskúrshurð. Þvottahús er innan íbúðar. Baðherbergi var endurnýjað árið 2022. Stutt í alla helstu þjónustu, leikskóli, grunnskóli og framhaldsskóli í göngufæri. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 161,2fm. og þar af eru bílastæði alls 51,6 fm. og geymsla 10,1fm.

Nánari lýsing: 

Forstofa með góðu skápaplássi og flísum á gólfi. 
Stofa björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt er út á stórar suð/vestur svalir úr stofunni.
Eldhús með innréttingu með efri og neðri skápum, nýlegt Smeg gashelluborð, nýlegur Smeg ofn, tengi fyrir uppþvottavél, gufugleypir, flísar á milli skápa, eldhúskrókur á milli eldhúsins og stofunnar og parket á gólfi.
Hjónaherbergi með mjög góðu skápaplássi, sérsmíður fataskápur og dúkur á gólfi.  
Svefnherbergi II rúmgott með dúk á gólfi. 
Svefnherbergi III með dúk á gólfi. 
Baðherbergi var uppgert árið 2022, innangeng sturta, gott skápa- og borðpláss, upphengt salerni, handklæðaofn og flísalagt í hólf og gólf. 
Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi. 

Geymsla íbúðar er í kjallara hússins með hillum, málað gólf.
Í bílakjallara fylgja tvö stæði og er annað þeirra nýtt sem vinnuaðstaða/geymsla og er lokað með bílskúrshurð. Innangengt er úr húsi í bílakjallara. 

Anddyri með póstkössum og dyrasíma frá 2021, flísar á gólfi. Stigahús með teppi. 
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign, þaðan er útgengt út í bakgarð. Sorpgeymsla er í lokuðu rými við anddyri. 
Hleðslustaur í eign húsfélagsins Berjarima 2-8 er við bílastæði framan við húsið. 
Sameiginleg dekkjageymsla er í húsinu. 

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. ágú. 2007
22.980.000 kr.
28.000.000 kr.
161.2 m²
173.697 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík