Lýsing
*** Bókið söluskoðun ***
Forstofa er nokkuð opin og rúmgóð með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhúsið er með fallegri eikarinnréttingu með ljúflokun í skúffum og góðu skápaplássi. Parket á gólfi. Flísar á milli efri og neðri skápa og granítborðplata.
Stofan og borðstofan eru í opnu og björtu rými með eldhúsi. Parket er á gólfi og útgengt er út á yfirbyggðar svalir með fallegu útsýni til suðvesturs / vesturs. Tréflísar eru á svalagólfi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfum og fataskápum. Hjónaherbergi er rúmgott.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með sturtu, handklæðaofni og eikarinnréttingu með granít borðplötu.
Þvottahús er innan íbúðar með flísalagt gólf og gott skápapláss.
Í sameign er sérgeymsla íbúðar ( 6,9 fm) ásamt sameiginlegum rýmum.
Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni og þar er tengi fyrir hleðslustöð.
Í nágrenninu er öll helsta þjónusta eins og Spöngin með allri sinni þjónustu, golfvöllur, kvikmyndahús, sundlaug og skemmtilegar gönguleiðir
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is
-----------------------------------------------------------
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat