Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Vista
svg

424

svg

341  Skoðendur

svg

Skráð  14. júl. 2025

parhús

Fannafold 181

112 Reykjavík

130.000.000 kr.

875.421 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2041437

Fasteignamat

92.750.000 kr.

Brunabótamat

81.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1988
svg
148,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 22. júlí 2025 kl. 17:00 til 18:00

Lýsing

FANNAFOLD 181, 112 REYKJAVÍK.  

Fallegt og vel skipulagt fjögurra herbergja, mikið endurnýjað parhús á einni hæð með bílskúr við Fannafold í Reykjavík.

Birt stærð eignar er skráð 148,5 fm., þar af er bílskúr 23,0 fm. Merkt matseining hjá HMS er 01-0101.
Gildandi fasteignamat 2025 er kr. 92.750.000,-  Áætlað fasteignamat fyrir 2026 er 99.050.000 kr.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, þvottahús, þrjú svefnherbergi og bílskúr. 
Stór timburverönd til vesturs og bakgarður með nýlegum rafmagns saltvatnspotti og "infrarauðri-saunu".
Sér bílastæði við inngang og líka framan við bílskúr.


ÝTTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT

Nánari lýsing:
Komið er inn í flísalagða forstofu með áföstu fatahengi. 
Eldhúsið er bjart og opið við stofu/borðstofu. Nýleg falleg innrétting með miklu skápaplássi og eyju með kvarts borðplötu og rafmagnstenglum. Tveir ofnar, stórt span helluborð og vifta. Tvöfaldur ísskápur getur fylgt með, allt eftir nánara samkomulagi.
Parketlögð stofa/borðstofa er rúmgóð með góðri lofthæð. Þar sem stofan byrjar er möguleiki er á að bæta við fjórða herberginu. Útgengt er úr stofu á timburverönd til vesturs.   
Þrjú parketlögð svefnherbergi. Tvö þeirra með skápum. Hjónaherbergi er rúmgott með stórum þreföldum fataskáp.
Baðherbergið er með fallegum flísum á gólfi og veggjum. Góð innrétting, granít í borðplötum, "walki-in" sturta, baðkar, vegghengt salerni og handklæðaofn. 
Flísalagt þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Úr þvottahúsi er aðgengi að rúmgóðu geymslulofti. 

23,0 fm. bílskúr með steyptu gólfi og rafdrifnum bílskúrshurðaopnara. 

Að sögn seljanda var baðherbergi tekið í gegn 2009, þakkantur endurrýjaður 2019, húsið málað að utan 2020.
Árið 2021 var eldhús endurnýjað, nýtt harðparket og innihurðir frá Egill Árnason ehf.
Rafmagns saltvatnspottur og infrarauð sauna var sett út í garð 2021.

Fallegt parhús í rólegu, grónu hverfi. Stutt er í alla helstu þjónustu og eins er skóli og leikskóli í göngufæri. 

Eignin verður sýnd þriðjudaginn 22. júlí 2025, frá klukkan 17:00 til 18:00.

Nánari upplýsingar veita:
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / kristjan@helgafellfasteignasala.is  
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@helgafellfasteignasala.is

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

img
Knútur Bjarnason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Helgafell fasteignasala ehf.
Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
img

Knútur Bjarnason

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík

Knútur Bjarnason

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík