Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sveinbjörn Halldórsson
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Baldur Jezorski
Díana Arnfjörð
Hulda Ósk Baldvinsdóttir
Vista
svg

165

svg

147  Skoðendur

svg

Skráð  21. júl. 2025

raðhús

Vetrarbraut 35

815 Þorlákshöfn

71.900.000 kr.

739.712 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2518051

Fasteignamat

5.510.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
97,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Garður 

Nýtt, fallegt og fullbúið, 4ra herbergja endaraðhús að Vetrarbraut 35, Þorlákshöfn. Húsið er á frábærum stað í nýju, rólegu hverfi í Þorlákshöfn, þó í einungis 3 mín göngufjarlægð frá leik- og grunnskólum ásamt íþróttasvæði!
Skipting eignar: Þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús
 (með millilofti) inn af anddyri, eldhús og björt stofa með innbyggðir lýsingu allt í einu rými. fallegur garður sem er lokaður af með ídráttar rör fyrir heitan pott .

Eignin afhendist fullfrágengin að innan sem utan. Lóðin er þökulögð, hellulagt bílaplan, timburpallur á baklóð. Sorptunnuskýli fyrir 3 tunnur komin og há girðing við lóðamörk á baklóð, til að skerma af innsýn frá götu.
2 mínútna gangur er í grunnskóla, sundlaug, íþróttahús og leikskóla. 5 mínútna gangur er í búðina. (myndir eru sýningarmyndir af samskonar húsi)


Í sveitarfélaginu er fjölbreytt þjónusta, verslanir, veitingastaðir, bensínstöðvar, klipping, nudd, jóga og margt fleira. 19 mín akstur í Hveragerði, 26 mín á Selfoss, 34 mín á Rauðavatn, 68 mín á flugvöllinn.

Nánari lýsingu má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.is

----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Lóðin: Sólrík suðvestur baklóð sem nýtur sólar allan daginn. Á baklóðinni er hægt er að ganga út úr húsi úr stofu (rennihurð) og svefnherbergi (svalahurð). Þar er trépallur og er lóðin þökulögð. Garðkrani er á vegg. Gert hefur verið ráð fyrir að íbúar geti sett niður heitan pott í garðinum og eru ídráttarrör fyrir vatn og rafmagn klár rétt undir palli og einnig er búið að ganga frá frárennsli fyrir pottinn. Innkeyrsla og aðkoma fyrir framan hús er hellulögð með snjóbræðslurörum undir. Snjóbræðslan verður ekki tengd en rörin liggja klár inn í þvottahús ef nýr eigandi vill tengja. Sorptunnuskýli fyrir þrjár tunnur er komið.
Botnplata: Botnplata með ísteyptum hitalögnum
Útveggir: Útveggir staðsteyptir í Durisol kubba með 10 sm einangrun, múrað að innan, vatnsheldur öndunardúkur undir klæðningu. Klæðning báruál og hitameðhöndluð fura
Innveggir: 95mm stálgrind klædd með spónaplötum og gipsi yfir, hljóðeinangrun á milli, sparslað og fullmálað í ljósum lit. Veggir á baðherbergi eru klæddir með  Fermacell.
Þak: Timburþak klætt með þakpappa og Aluzink báru, einangrað með 24cm þakull, rakasperra neðan á einangrun. Neðan á sperrur kemur tvöföld 45x45 lagnagrind klædd með ljósum panel.
Þakkantur og rennur: Þakkantur er úr timbri. Svartar álrennur eru utan á þakkanti. Þakkantur er klæddur að neðan og er lýsing í honum allan hringinn. Einnig eru tenglar í þakkanti beggja megin við hús, fyrir jólaseríurnar.
Gluggar og hurðir: Ál-tré-plast gluggar frá Idealcombi, RAL 9005 að utan (svart) og RAL 9010 að innan (hvítt). Tré að innan, ál að utan og plast í botnstykki. Rennihurð í stofu frá sama fyrirtæki. Svört útihurð frá Idealcombi og 1
hvítar hefðbundnar yfirfelldar innihurðir.
Gólf: Ljósar flísar á bað, anddyri og þvottahús. Ljóst parket á önnur gólf.
Loft: Loftið er upptekið, klætt með ljósum loftapanel. Þakið er tvíhalla og hátt er til lofts í miðju húsinu, allt að 3,6 m Niðurtekið loft á baðherbergi.
Lagnir: Skólplagnir eru tengdar fráveitukerfi í götu. Rör í rör kerfi er fyrir neysluvatn og er undir botnplötu og tengt við tengikistur. Gólfhiti með tölvustýringu er í húsinu.
Raflagnir: Rafmagnslögn er fullfrágengin. Innfelld lýsing með dimmerum er í alrými (gangur, stofa og eldhús). Kúplar á bað og í þvottahúsi og lýsing komin í svefnherbergin. Ídráttarrör eru lögð undir plötu frá töfluskáp og út í garð ef ske kynni að kaupandi myndi vilja setja heitan pott eða nota rafmagn til annarra nota. Tenglar eru í þakskyggni bæði að framan og aftan, hugsaðir til að stinga jólaseríum í samband. Gert er ráð fyrir rafbílahleðslu í töflu og er lögn lögð út fyrir og falin í veggstubb sem auðvelt er að opna ef kaupandi vill setja upp hleðslustöð síðar. Ljósleiðari kominn inn í hús.
Eldhús: Hefðbundin eldhúsinnrétting í ljósum lit. Helluborð, bakaraofn og innfelld uppþvottavél fylgja. Ísskápur fylgir ekki en reiknað er með 60 sm breiðum skáp í innréttinguna, allt að 2,03 m háum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum. Hefðbundin baðinnrétting, speglaskápur, handklæðaofn og upphengt salerni, innbyggð Grohe blöndunartæki eru í sturtu.
Þvottahús: Plastlögð borðplata með skolvaski í. Undir borðplötu eru skápar en í þeim er ekkert bak svo hægt sé að komast í lagnagrindur á veggnum á bakvið. Upphækkun er undir þvottavél og þurrkara með skúffu og útdraganlegu vinnuborði undir. Flísalagt gólf. Forstofuskápur snýr baki inn í þvottahúsið en er aðgengilegur úr forstofu. Milliloft er í þvottahúsi, hugsað sem geymsla fyrir dekk og/eða jólaskraut!
Inntaksgjöld: Inntaksgjöld fyrir hita og rafmagn eru greidd.
Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem lagt er á við endanlegt brunabótamat.
Afhendingartími: Núverandi verkáætlun gerir ráð fyrir að hægt verði að afhenda húsin fullbúin að innan og utan 15. desember 2025


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

img
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan Garður
Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður
Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður
img

Halldór Freyr Sveinbjörnsson

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður
Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður

Halldór Freyr Sveinbjörnsson

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður