Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Elín D. Guðmundsdóttir
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
svg

113

svg

87  Skoðendur

svg

Skráð  25. júl. 2025

fjölbýlishús

Veghús 31

112 Reykjavík

67.500.000 kr.

732.104 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2040837

Fasteignamat

60.300.000 kr.

Brunabótamat

44.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1991
svg
92,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta
Opið hús: 29. júlí 2025 kl. 17:00 til 17:30

Veghús 31 - Mjög falleg 3ja herbergja útsýnisíbúð á 9. hæð - Opið hús þriðjudaginn 29. júlí á milli kl. 17.00 og 17.30 - Verið velkomin

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, vandaða og vel skipulagða 3ja herbergja 92,2 fermetra íbúð á 9. hæð með suðursvölum og stórkostlegu útsýni í nýlega viðgerðu og eftirsóttu fjölbýlishúsi við Veghús 31 í Grafarvogi.
Mjög stór lóð er í kringum húsið og aðkoma að húsinu er góð með stóru og miklu bílaplani með miklum fjölda bílastæða.  Fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2026 verður kr. 65.650.000.-

- Húsið er nýlega múrviðgert og málað að utan auk þess sem skipt var um gler í húsinu eins og þurfti.
- Báðar lyftur í stigahúsi eru nýja, teppi á sameign eru ný og sameign er nýmáluð.
- Tvær rafhleðslustöðvar voru nýlega settar upp á bílastæði hússins
- Útidyrahurð íbúðar er nýlega endurnýjuð og mynddyrasímakerfi er í húsinu

Lýsing eignar:

Forstofa, flísalögð og með góðu fatahengi og hillum.
Gangur, parketlagður.
Barnaherbergi, rúmgott, parketlagt og með fataskápum.
Baðherbergi, nýendurnýjað, flísalagt gólf og veggir, vaskskápar, vegghengt wc, handklæðaofn og flísalögð sturta með sturtugleri.
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með miklum fataskápum.
Samliggjandi stofur, parketlagðar, rúmgóðar og bjartar með gluggum til suðurs og vesturs og frábæru útsýni.  Úr stofu er útgengi á rúmgóðar suðursvalir með einstöku útsýni út á Reykjanesið, að Snæfellsjökli, Akrafjalli og víðar.
Eldhús, opið við borðstofu, flísalagt og með fallegum hvítum + beyki- og sprautulökkuðum innréttingum með flísum á milli skápa, nýjum blástursofni og tengi fyrir uppþvottavél. Stór áföst eyja er á innréttingu með nýju helluborði og borðaðstöðu.
Þvottaherbergi, innaf eldhúsi er flísalagt og með góðum innréttingum með stæðum fyrir vélar í vinnuhæð og vaski.

Sérgeymsla, er við hlið inngangs í íbúðina og er hún með lökkuðu gólfi og hillum. 

Á jarðhæð hússins er sameiginleg hjólageymsla.

Húsið að utan er nýlega viðgert og málað og sameign er öll endurnýjuð og mjög snyrtileg.

Lóðin er fullfrágengin með miklum fjölda bílastæða og góðri aðkomu.


Góð staðsetning í hinu gróna Húsahverfi, þar sem stutt er í skóla, leikskóla, golfvöll, kvikmyndahús, sundlaug, skíðabrekku, skautahöll, skemmtilegar gönguleiðir, verslun og ýmsa aðra þjónusta. Einnig er stutt út á helstu stofnbrautir. 

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. júl. 2020
59.150.000 kr.
42.500.000 kr.
10904 m²
3.898 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone