Opið hús: Klapparhlíð 9, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 6. ágúst 2025 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.
Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og björt 87,5 m2, 3ja herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi og stórri afgirtri timburverönd við Klapparhlíð 9 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í forstofu, gang, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Falleg og björt íbúð á vinsælum stað í Mosfellsbæ. Stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug, líkamsræktarstöð, golfvöll og vinsæl útivistarsvæði.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:
Forstofa er með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Gangur er með harðparketi á gólfi.
Stofa og eldhús mynda alrými íbúðarinnar og eru með harðparketi á gólfi. Í eldhúsi er L-laga innrétting og borðkrókur. Í innréttingu er blástursofn, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Úr stofu er útgengt á afgirta timburverönd í suðvesturátt.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt, með innréttingu, handlaug, salerni, handklæðaofni og nuddbaðkari með sturtuaðstöðu. Gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi, borðplötu, vaski og hillum.
Geymsla er innan íbúðar með flísum á gólfi.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 69.500.000,-
Verð kr. 74.900.000
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.