Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
svg

157

svg

145  Skoðendur

svg

Skráð  6. ágú. 2025

fjölbýlishús

Laugateigur 17

105 Reykjavík

77.900.000 kr.

850.437 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2019173

Fasteignamat

65.500.000 kr.

Brunabótamat

40.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1948
svg
91,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur
Opið hús: 18. ágúst 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Laugateigur 17, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 18. ágúst 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna Laugateig 17, þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í góðu þríbýlishúsi, sem fengið hefur gott viðhald og endurnýjun á síðustu árum. Íbúðin sjálf hefur ennig verið mikið endurnýjuð á síðustu árum, m.a. þar sem skipulagi var breytt, baðherbergi stækkað frá upprunalegri teikningu og nýtt anddyri með sérafnotareit fyrir framan hús. Laugateigur 17 er á frábærum stað í hinum eftirsótta Laugardal, þaðan sem stutt er í alla þjónustu, leikskóla, grunnskóla og á íþróttasvæði Þróttar / Ármanns.

Birt stærð eignar skv skráningu HMS er 91,6 fm

Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is

Nánari lýsing eignar:

Gengið er inn um sérinngang af jarðhæð inn í opna forstofu/hol.
Opið eldhús er innaf holi og gengið inn í stofu 
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar en útgengt er úr stofu út á sérafnotareit íbúðarinnar.
Svefnherbergin eru tvö bæði með fataskápum, bæði stór og rúmgóð.
Rúmgott og endurnýjað baðherbergi, með glugga, góðri innréttingu, baðkari/sturtu og tengi fyrir þvottavél.
Parket er á öllum gólfum íbúðar, en flísar á baðherbergi.
16A tengi komið fyrir í rafmagnstöflu til að gera tengingu hleðslustöðvar fyrir rafbíl mögulega.
Geymsla er innan íbúðar.

Áætlað fasteignamat 2026 er kr. 70.750.000.

Skv upplýsingum frá seljanda var húsið sjálft steinað að utan fyrir um 10 árum. Þá var skorsteinn fjarlægður, nýtt járn sett á þak og þakglugga komið fyrir, fyrir um 5 árum. Skólp og dren einnig endurnýjað í tengslum við breytingar á inngangi íbúðar. Sérafnotareitur er framan við inngang.

Hér er afar falleg og mikið endurnýjuð eign á ferðinni á frábærum stað í Laugardalnum. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. okt. 2019
37.750.000 kr.
40.000.000 kr.
91.6 m²
436.681 kr.
11. mar. 2013
20.200.000 kr.
27.500.000 kr.
91.6 m²
300.218 kr.
10. jan. 2008
17.230.000 kr.
19.500.000 kr.
77.5 m²
251.613 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík