Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðlaugur H Guðlaugsson
Halldór Magnússon
Upplýsingar
svg
Byggt 1978
svg
193,1 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir einstakt tækifæri til þess að eignast virkilega vel við haldið einbýlishús í botngötu við Heiðarbraut í Keflavík þar sem krakkarnir geta gengið bæði í skóla og leikskóla án þess að fara yfir götu. Um er að ræða 193fm 6 herbergja einbýlishús sem er talsvert endurnýjað. Stofan virkilega björt með arinn eldstæði þar sem gengið er út á suð-vestur sólpall. Snyrtileg grasilögð lóð umliggur eignina.

*Þakkantur endurnýjaður
*Búið er að endurnýja alla glugga áveðurs
*Allar útihurðir ásamt bílskúrshurðum endurnýjaðar
*Gestasalerni endurnýjað
*Þvottahús með nýlegri innréttingu
*Eldhús endurnýjað
*Nýlega sett epoxy á bílskúr og þvottahús


Anddyri hefur flísar á gólfi. Þar innaf er gestasalerni og anddyrisherbergi. Flísar eru á gólfum, einnig er nýlega endurnýjaður fataskápur í anddyri.
Stofa er björt og glæsileg með parket á gólfi, þar er arinn. Gengið er út á sólpall sem snýr í suð-vestur. 
Eldhús hefur verið endurnýjað á glæsilegan máta, þaðan er opið inní stofu sem myndar skemmtilega nýtingu.
Þvottahús er innaf eldhúsi og þar er endurnýjuð innrétting ásamt nýlegu epoxy á gólfi. 
Bílskúr er tvöfaldur með epoxy á gólfi. 
Herbergin eru í heildina fimm en möguleiki er að stækka tvö þeirra með því að opna á milli.
Baðherbergi er snyrtilegt með sturtu og hornbaðkari.

Brynjar Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
s: 896-5464
brynjar@studlaberg.is

Stuðlaberg Fasteignasala

Stuðlaberg Fasteignasala

Hafnargata 20, 230 Keflavík
Stuðlaberg Fasteignasala

Stuðlaberg Fasteignasala

Hafnargata 20, 230 Keflavík