Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Lilja Guðmundsdóttir
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Ingimar Óskar Másson
Kári Sighvatsson
Jenný Sif Ólafsdóttir
Vista
einbýlishús

Klukkurimi 18

112 Reykjavík

145.000.000 kr.

851.939 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2039761

Fasteignamat

124.350.000 kr.

Brunabótamat

99.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1990
svg
170,2 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Laus strax

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Vel skipulagt og huggulegt einbýlishús á einni hæð í Rimahverfinu. Vinsæl staðsetning. Mjög rólegt umhverfi innst í botnlanga og við kirkjugarðinn. Húsið er laust til afhendingar við kaupsamning. 

Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is 

Um er að ræða nánar tiltekið einbýlishús við Klukkurima 18, 112 Reykjavík, F2039761. Einbýlishús á einni hæð með bílskúr. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 170,2 fm, þar af er íbúðarrými 136,8 fm og bílskúr er 33,4 fm. Íbúðarrýmið skiptist í anddyri, gestasnyrtingu, skála, eldhús, borðstofu, stofu, sjónvarpsstofu, tvö (áður þrjú) svefnherbergi og baðherbergi. Innangengt er í bílskúr þar sem einnig er sérþvottahús og gott geymsluloft. Fasteignamat 2026 = 133.500.000 kr.

*** Sækja söluyfirlit *** 

Nánari lýsing eignar: 
Anddyri er með skápum. Flísar á gólfi.
Snyrting er inn af anddyri. Hvít innrétting. Salerni og handlaug. Flísar í hólf og gólf. Opnanlegur gluggi. 
Eldhús er rúmgott í norðaustur horni hússins. Stór innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Borðkrókur. Flísar á gólfi. Gluggar í tvær áttir og útgengi út í garð.
Búr er inn af eldhúsi. Hillur. Flísar á gólfi. 
Skáli tengir saman eldhús, borðstofu og sjónvarpsstofu. Parket á gólfi. 
Borðstofa er rúmgóð, parket á gólfi og útgengi út í garð. 
Stofa er björt og með stórum gluggum. Parket á gólfi. 
Sjónvarpsstofa er í millirými, tengist yfir á herbergjagang. Parket á gólfi.
Svefnherbergi 1 er rúmgott hornherbergi með skápum. Parket á gólfi. Gluggar í tvær áttir og útgengi út í garð. 
Svefnherbergi 2 er mjög rúmgott (áður tvö minni herbergi) með skápum. Væri hæglega hægt að skipta aftur upp í tvö herbergi. Parket á gólfi. 
Baðherbergi er rúmgott með stórri hvítri innréttingu með skúffum og mjög góðu skápaplássi. Handlaug. Salerni. Sturtuklefi. Handklæðaofn og hefðbundinn ofn. Flísar í hólf og gólf. Opnanlegur gluggi. 
Þvottahús er inn af anddyri á leið inn í bílskúr, innangengt er á milli bílskúrs og íbúðarrýmis. 
Bílskúr er 33,4 fm með góðri lofthæð, bjartur með gluggum í tvær áttir, innkeyrsluhurð og inngönguhurð. Epoxy á gólfi. Innangengt er í bílskúrinn úr anddyri. 
Geymsluloft er yfir hluta bílskúrs, gott geymslurými með hillum. 

Húsið er steinsteypt í flekamótum. Á þaki og þakkanti er bárustál. Lóðin er 759 fm, mjög gróin með miklum trjám og gróðri. Hellulögð innkeyrsla og hellulagt er í kringum húsið austanmegin og á baklóðinni sunnanmegin / garðmegin. Mjög rólegt umhverfi innst í botnlanga og við kirkjugarðinn. 

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í. 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

img
Kári Sighvatsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Eignamiðlun
Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
img

Kári Sighvatsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík

Kári Sighvatsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík