Opið hús: Asparfell 2, 111 Reykjavík, Íbúð merkt: 04 04 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 13. ágúst 2025 milli kl. 18:30 og kl. 19:00.
Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 111,8 fm. og þar af er geymsla 4,7fm.
Fasteignamat fyrir árið 2026 verður kr. 65.450.000
Nánari lýsing eignar:
Forstofa með skáp og flísum á gólfi.
Gestasalerni með handlaug ásamt salerni og tengingu fyrir þvottavél.
Eldhús hefur verið endurnýjað, innrétting með neðri og efri skápum að hluta, flíslagt er á milli skápa, helluborð, gufugleypir, eldhúskrókur og flísar á gólfi. Gegn eldhúsi er útgengt út á skjólgóðar suðursvalir með útsýni að sameiginlegum garði og nærumhverfi.
Stofa/borðstofa er samliggjandi parketlagt rými, búið er að taka hluta af stofu og bæta við aukaherbergi og er þaðan útgengi út á austursvalir með útsýni til fjalla og að nærumhverfi.
Svefnherbergisgangur parketlagður og á ganginum eru þrjú svefnherbergi.
Hjónaherbergi er á enda gangsins rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Svefnherbergi eru tvö annað þeirra með skáp og parket á gólfum.
Einstakt útsýni er frá öllum svefnherbergjum.
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, snyrtileg baðinnrétting og flísar á veggjum og gólfi.
Geymsla með hillum er á svefnherbergisgangi.
Ath. Búið er að breyta nýtingu eignar frá upphaflegum teikningum þar sem bætt var við herbergi við stofuna.
Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni, ásamt rými með geymsluskáp sem er á gangi hæðar.
Geymsla 4,7 fm er á geymslugangi jarðhæðar.
Tveir inngangar eru að húseign frá bílastæðum að framan og að sameiginlegum garði bakatil.
Rafmagnshleðslustöð fyrir rafmagnsbíla er á bílastæði við húsið.
Góð fjölskyldueign gott aðgengi og stutt í alla helstu þjónustu, verslun, skóla, leikskóla og almenningssamgöngur.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.