Opið hús: Gullengi 7, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 13. ágúst 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Birt stærð eignar skv skráningu HMS er 67,7 fm
Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson hdl og löggiltur fasteignasali með tölvupósti á kristjan@trausti.is
Nánari lýsing eignar:
Gengið í rúmgott anddyri með flísum á gólfi.
Eldhús opið að hluta inn í stofuna með hvítri snyrtilegri innréttingu.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar en útgengt er úr stofu út á stóran viðarpall með skjólveggjum.
Svefnherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi.
Lítið herbergi er innan íbúðar sem merkt er geymsla á teikningu en hefur í einhverjum íbúðum verið nýtt sem barnaherbergi.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuaðstöðu, tengi fyrir þvottavél.
Výnildúkur er á öllum gólfum íbúðar, en flísar á baðherbergi.
Við hlið íbúðarinnar er gengið inn í sameiginlega hjóla- og vagnageymslu en þar eru stórir geymsluskápar sem fylgja íbúðum hússins.
Sameiginlegur gróinn garður og næg bílastæði eru við húsið.
Hér er afar falleg eign á ferðinni á frábærum stað í Grafarvoginum með rúmgóðum palli. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða hjá Kristjáni Baldurssyni með tölvupósti á kristjan@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.