Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Vista
einbýlishús

Gauksstaðavegur 4

250 Garður

68.900.000 kr.

378.571 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2095475

Fasteignamat

51.650.000 kr.

Brunabótamat

65.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1982
svg
182 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 16. ágúst 2025 kl. 13:00 til 14:00

Opið hús: Gauksstaðavegur 4, 250 Garður. Eignin verður sýnd laugardaginn 16. ágúst 2025 milli kl. 13:00 og kl. 14:00.

Lýsing

Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905, kynna í einkasölu, Gauksstaðarveg 4, 250 Garði;
Snyrtilegt 5 herbergja einbýlishús á einni hæð með sérstæðum tvöföldum bílskúr. 
MÖGULEG SKIPTI Á MINNI SÉREIGN


- Húsið er skráð 132 m2 að auki er sérstæður bílskúr rúml. 50 m2.
- Samtals hús og bílskúr ca. 187 fm 
- SG timbur einingahús frá 1982
- Tvöfaldur bílskúr er byggður ca. 1984 og er óskráður skv. HMS (til eru teikningar)

- 4 svefnherbergi
- Komið er að viðhaldi og endurbótum á húsinu
- Möguleiki á íbúðareiningu í bílskúr; sér inngangur, 2 gluggar, rafmagn, hiti og niðurfall


Eignin skiptist í: Forstofu, gang/hol, geymslu (gestasalerni skv. teikningu). eldhús, þvottahús, stofu/borðstofu, 4 svefnherbergi, baðherbergi og bílskúr.
Forstofa: Flísalögð. Þaðan er hægt að fara upp á risloftið um niðurfellanlegan stiga.
Geymsla/gestasalerni: Nýtt sem geymsla en þar er stammi fyrir salerni og skv. teikningu þá er það skráð þannig. Gluggi.
Gangur/hol: Parketlagður. Þaðan er gengið inn í flestar aðrar vistarverur hæðarinnar utan þvottahúss sem er af eldhúsi.
Eldhús: Flísalagt, bjart, rúmgott og vel skipulagt. Upprunanlegt og komið að endurnýjun. Gert er ráð fyrir borðkrók. 2 gluggar.
þvottahús: Rúmgott með opnanlegum glugga, vaskborði og hillum. Útgengi er þaðan í átt að bílskúr, á gafli hússins.
Borðstofa/stofa: Björt samliggjandi stofur. Gluggasetning eftir henni endilangri og útgengi á pall með skjólgirðingu.
4 Svefnherbergi: Af rúmgóðu parketlögðu holi sem nýtist sem setustofa koma 4 svefnherbergi og Baðherbergið.
1. Parketlagt með lausum skáp.
2. Parketlagt - nýtt sem sjónvarpsrými.
3. Dúklagt með skáp á heilum vegg.
4. Dúklagt með lausum skáp.

Baðherbergi: Rúmgott með glugga. Flísalagt með vaskinnréttingu, skáp, salerni, handklæðaofrni, baðkari og sturtuklefa (virkar ekki).
Geymsluloft í risi.
Bílskúr:  Sérstæður, rúmlega 50 fm: rafmagn, hiti og niðurfall. Sér inngangshurð er á hlið og 2 góðir gluggar í enda hans. 2 innkeyrsluhurðir. Gott bílastæði er fyrir framan bílskúrinn. Bílskúrinn er ca 9x6 fm að innanmáli - samtals ca 54 fm en hann er óskráður.
Lóð: Lóðin er hluti 1050 fm eignarlóðar og er eignarhluti 27,28 %. Lóðin er grasi vaxinn.

Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 695-8905 eða elin@valholl.is

Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone