Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2018
46,7 m²
1 herb.
1 baðherb.
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Lyfta
Opið hús: 21. ágúst 2025
kl. 16:30
til 17:00
Opið hús: Davíðshagi 10 - 304. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 21. ágúst 2025 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Davíðshagi 10 - 403
Vel skipulögð stúdíóíbúð á þriðju og efstu hæð með rúmgóðum svölum sem snúa til suðurs. Lyfta er í húsinu sem er byggt 2018 og er nyrst í Hagahverfi, mjög stutt út úr hverfinu að stofnbraut. Eignin er samtals 46,7 fm. en þar af er geymsla í sameign 2,9 fm.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, svefnaðstöðu, baðherbergi og geymslu innan íbúðar.
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús og stofa eru í opnu rými. Þar er harð parket á gólfi og tvílít, eik og hvít innrétting með flísum á milli skápa. Úr stofu er rennihurð út á steypta verönd til suðurs sem er skráð yfir 10 fm.
Svefnaðstaða er með harð parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu, upphengdu salerni, sturtu, handklæðaofni og stæði fyrir þvottavél.
Geymslurnar eru tvær, önnur innan íbúðar er með harð parketi á gólfi og hin með aðkomu úr sameign.
Annað:
- Mynddyrasími
- Gólfhiti
- Rafhleðslustöð fyrir bíla er á bílaplani fyrir ofan (vestan við) húsið
- Rúmgóðar svalir með útsýni.
- Stutt í náttúruparadís í Naustaborgum og Kjarnaskóg
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. des. 2017
1.300.000 kr.
20.400.000 kr.
46.7 m²
436.831 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025