Opið hús: miðvikudaginn 3. september 2025 milli kl. 17:15 og kl. 17:45. Hringbraut 58, 230 Reykjanesbær, Íbúð merkt: 202.
Lýsing
Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og sérgeymslu í sameign. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 65,30 fermetrar.
Nánari lýsing:
Anddyri: Parket á gólfi og fataskápur.
Eldhús: Ný hvít eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi. Flísar á vegg. Gott vinnupláss, tengi fyrir uppþvottavél og háfur. Stór gluggi sem hleypir inn náttúrulegri birtu.
Stofa: Í samliggjandi rými við eldhús. Parket á gólfi. Björt og rúmgóð stofa með stórum gluggum og útgengi á suðvestur svalir.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og stór fataskápur.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og pláss fyrir fataskáp.
Baðherbergi: Nýlegt: baðkar, blöndunartæki, handklæðaofn og innrétting. Salerni baðkar með sturtu og gluggi á baðherbergi.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign.
Annað:
Nýlegt gólfefni í allri íbúðinni. Flest opnanleg fög hafa verið endurnýjuð. Hús vel við haldið. Stutt í alla helstu þjónustu, grunnskóla, leikskóla, sundlaug og verslanir. Góðar almenningssamgöngur í göngufæri.
Eign sem hentar jafnt fyrstu kaupendum sem og þeim sem leita að vel staðsettri og uppgerði íbúð í rólegu og fjölskylduvænu umhverfi í hjarta Reykjanesbæjar.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / sími 450-0000
Instagram: Baldur fasteignasali
Netverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður