Lýsing
Miklaborg kynnir: Bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja 86,3 fermetra íbúð á 2. hæð með rúmgóðum svölum til suðurs við Efstahjalla í Kópavogi. Búið er að fara í algjöra endurnýjun á húseigninni síðastliðin ár, skipta um þakjárn og rennur, endurnýja glugga og dren ásamt því að húsið var múrviðgert og málað.
***Eignin verður ekki sýnd fyrir opið hús***
Nánari lýsing
Forstofa: Með góðum fataskáp. Parket á gólfi.
Eldhús: Er hálfopið við stofu með ljós málaðri innréttingu með flísum á milli skápa. Góður borðkrókur er inn af eldhúsinu með fallegu útsýni í norður. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Er rúmgóð og björt. Frá stofu er útgengi á suðursvalir. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Er með baðkari með sturtuaðstöðu og glugga. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi.
Barnaherbergi: Parket á gólfi
Geymsla: Er 7,3 í kjallara.
Staðsetning eignarinnar er mjög góð og stutt er í leikskóla, grunnskóla, verslanir og þjónustu. Einnig er göngufæri í Kópavogsdalinn.
Lóðin, er fullfrágengin með góðri aðkomu og fjölda bílastæða framan við húsið á lóð til norðurs. Sunnan við húsið er stór sameiginlegur garður.
Allar nánari upplýsingar veitir
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is